2009
ÁRÁSIN Á GOÐAFOSS - BJÖRN BRYNJÓLFUR BJÖRNSSON
Í nóvember 1944 var skip Eimskipafélagsins, Goðafoss, að koma til Íslands í skipalest bandamanna. Þegar skipin komu fyrir Garðskaga skaut þýski kafbáturinn U-300, tundurskeyti í Goðafoss sem sökk á nokkrum mínútum. Með skipinu fórust 42 menn, konur og börn og var þetta mesta manntjón sem Íslendingar urðu fyrir í seinni heimsstyrjöldinni.
Í myndinni fylgjumst við með farþegum og skipverjum á Goðafossi á leið þeirra frá New York til Skotlands og þaðan til Íslands. Þá kynnumst við einnig skipverjum á U-300 sem gerður var út frá Noregi. Bretar og Bandaríkjamenn höfðu þegar hér var komið við sögu hrakið þýsku kafbátana af siglingaleiðum í Atlandshafi og því leyndist kafbáturinn fyrir innan allar varnir bandamanna á Íslandi. Þó fjöldi manna hafi séð árásina á Goðafoss úr landi hefur ekki enn tekist að finna flak skipsins - þrátt fyrir mikla leit.
Titill: Árásin á Goðafoss
Enskur titill: The Lost Ship
Tegund: Heimildamynd í tveimur hlutum
Tungumál: Íslenska
Leikstjóri: Björn Brynjólfur Björnsson
Handritshöfundur: Jón Ársæll Þórðarson, Þór Whitehead
Klipping: Björn Brynjólfur Björnsson
Kvikmyndataka: Guðmundur Bjartmarsson
Hljóðhönnun: Gunnar Árnason
Tónlist: Tryggvi Baldvinsson
Framleiðandi: Björn Brynjólfur Björnsson, Jón Ársæll Þórðarson
Framleiðslufyrirtæki: Reykjavik Films
Vefsíða: www.reykjavikfilms.com
Lengd: 2x55 mínútur
Upptökutækni: Digibeta Pal
Sýningarmiðill: Digibeta Pal
Sýningarhlutfall: 16/9
Frumsýnd: 25. desember 2009 (fyrri hluti) og 1. janúar 2010 (seinni hluti) á RÚV

