Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

2011

Grandma_Lo_Fi_Main_still

AMMA LO-FI - ORRI JÓNSSON, KRISTÍN BJÖRK KRISTJÁNSDÓTTIR, INGIBJÖRG BIRGISDÓTTIR

Amma Lo-fi er portrett af Sigríði Níelsdóttur sem fór að taka upp og gefa út sína eigin tónlist á áttræðisaldri. Á 7 árum urðu geislaplötur hennar 59 talsins, hver og ein þeirra barmafull af sérviskulegum, grípandi tónsmíðum. Lesa meira
 
Last_Days_of_the_Arctic_Still1

ANDLIT NORÐURSINS - MAGNÚS VIÐAR SIGURÐSSON

Heimildamynd um ljósmyndarann Ragnar Axelsson, RAX, og verk hans. Lesa meira
 
Bakka_Baldur_Still1klippt

BAKKA-BALDUR - ÞORFINNUR GUÐNASON

Baldur er frá Svarfaðardal og goðsögn í lifandi lífi þar í dalnum. Hann á sér draum um að hitta gamlan vin sinn, strandaglóp á Kyrrahafseyju, en það eru mörg ljón á veginum frá dalnum til Kyrrahafseyjunnar. Hver er þessi vinur hans? Hvaða stórkotslegu atvik úr fortíðinni tengir þá órjúfanlegum böndum?

Lesa meira
 
Dream_of_the_Way_Part_2_Still1

DRAUMURINN UM VEGINN: 2. HLUTI - ARFLEIFÐIN Í FARTESKINU - ERLENDUR SVEINSSON

Draumurinn um veginn er kvikmyndabálkur í fimm hlutum sem fjallar um pílagrímsgöngu rithöfundarins Thors Vilhjálmssonar til heilags Jakobs á Norður Spáni.

Lesa meira

 

EVERYTHING, EVERYWHERE, ALL THE TIME - PIERRE-ALAIN GIRAUD

Myndin veitir innsýn í stofnun og starfsemi útgáfunnar Bedroom Community, hugarheim listamannanna Nico Muhly, Ben Frost, Sam Amidon og Valgeirs Sigurðssonar, þeirra einstaka samstarf, hljóðverið Gróðurhúsið og sigra og raunir sem fylgja því að halda í tónleikaferðalag þegar eldgos eru á hverju strái.

Lesa meira

 
HKL_Still_1

HKL - HALLDÓR ÞORGEIRSSON

Myndin er um ævi og verk Halldórs Laxness, sem lifði alla tuttugustu öldina með öllum sínum stefnum og straumum, og hvernig íslensk stjórnvöld gerðu aðför að honum á laun og tókst að gera hann að  bannvöru í enskumælandi löndum með aðstoð Bandaríkjamanna. Lesa meira

 
Iceland_food_centre

ICELANDIC FOOD CENTRE - THORSTEINN J.

Þetta er mynd um fyrstu íslensku útrásina á árið 1965, þegar íslenska ríkið opnaði veitingastað í London. Lesa meira
 
Mundi_heima_i_spegli2_

LAND MÍNS FÖÐUR - ÓLAF DE FLEUR

Fylgst er með nokkrum bændum í Dölunum í þeirra daglega lífi og spurningum velt upp um mismun á gildismati hins nútíma þjóðfélags og bændasamfélagsins, kerfið, lífið og tilveruna.

Lesa meira

 
Motvaegi-Still

MÓVÆGI - GUÐBERGUR DAVÍÐSSON

Mótvægi er heimildamynd sem fjallar um Bryndísi Pétursdóttir, jarðfræðilega streitu, rafsegulbylgjur og áhrif þessara ósýnilegu og óáþreifanlegu fyrirbæra á líðan fólks. Bryndís finnur þessar bylgjur og gerir þær óskaðlegar með Mótvægiskubbnum sem hún hannaði. Við kynnumst fólki sem hún aðstoðar og heyrum skýringar og mótrök frá sérfræðingum sem vinna að rannsóknum með þessar bylgjur. Lesa meira
 
No_Bone_No_Skin_Still

ROÐLAUST OG BEINLAUST - INGVAR A. ÞÓRISSON

Þessi heimildamynd um áhöfnina á Kleifaberginu ÓF 2 frá Ólafsfirði sýnir óvænta hlið á lífi íslenskra sjómanna, hvunndagshetjum sem hafa fundið skemmtilega leið til þess að létta sér lífið; að spila og syngja saman. Lífið á sjónum er ekki bara puð, það rokkar líka. Lesa meira