FERÐALOK - BJÖRN HLYNUR HARALDSSON
ELDUR OG ASKA - PÁLL STEINGRÍMSSON
ASKA - EFTIRMÁLAR UNDIR JÖKLI - HERBERT SVEINBJÖRNSSON
Kvikmyndin Aska fylgir eftir þremur fjölskyldum til að sjá og heyra raunveruleg áhrif gossins í Eyjafjallajökli. Hvaða áhrif askan sem situr uppi á jöklinum hefur á líf þeirra, störf og skepnur. Þetta er manneskjuleg mynd sem fjallar um eftirmálanna undir jökli.
BLIKKIÐ: SAGA MELAVALLARINS - KÁRI G. SCHRAM
Saga Melavallarins er samtvinnuð sögu Reykjavíkur og menningasögu þjóðarinnar. Myndin lýsir sögu vallarins og allra þeirra góðu karla og kvenna sem unnu, svitnuðu, blæddu og grétu tárum í rykmettaðan völlinn og náðust á kvikmynd.
DRAUMURINN UM VEGINN (HLUTAR 3-5) - ERLENDUR SVEINSSON
Draumurinn um veginn er kvikmyndabálkur í fimm hlutum sem fjallar um pílagrímsgöngu rithöfundarins Thors Vilhjálmssonar til heilags Jakobs á Norður Spáni.
ÍSLAND FC - RÓBERT DOUGLAS
LAXÁRDEILAN - GRÍMUR HÁKONARSON
LENGSTA NÓTTIN - ÁGÚSTA EINARSDÓTTIR
Lengsta nóttin er stórbrotin saga af hetjulegri björgun í norður Atlantshafi á jólanótt árið 1986. Margar spurningar hafa vaknað um það hvað raunverulega olli því að M/S Suðurland sökk þessa örlagaríku nott á tímum kalda stríðsins. 11 menn voru um borð, fimm lifðu slysið af - þetta er frásögn þeirra.
Lesa meira
