The Sea

Leikið sjónvarpsefni

ÁVAXTAKARFAN - SÆVAR GUÐMUNDSSON

Ávaxtakarfan er í tólf þáttum og byggð á samnefndum söngleik eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur. Þættirnir hverfast um Mæju jarðarber, sem á ekki sjö dagana sæla í Ávaxtakörfunni. Í grunninn fjalla þættirnir um einelti og hvernig láta megi af óæskilegri hegðun en varðveita um leið vináttuna.

Lesa meira

FÓLKIÐ Í BLOKKINNI - KRISTÓFER DIGNUS

Vigga býr með fjölskyldu sinni í 8 hæða blokk á höfuðborgarsvæðinu. Vigga er 12 ára og við sjáum heiminn í gegnum augu hennar. Við kynnumst fjölskyldu hennar  sem er ósköp venjuleg íslensk fjölskylda en þegar nánar er athugað er hún skemmtilega “dysfunctional” eins og allir aðrir íbúar í blokkinni.

Lesa meira

HULLI - HUGLEIKUR DAGSSON

Hulli er teiknuð útgáfa af höfundi þáttanna, Hugleiki Dagssyni. Hann býr í teiknaðri Reykjavík og hangir með teiknuðum vinum sínum. Hulli er listamaður á niðurleið. Dónalegar myndasögur hans, sem hafa notið töluverðrar velgengni, eru hættar að seljast. Enda lesa krakkar ekki í dag. Þeir horfa.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica