ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN AÐ VILLA - BRAGI ÞÓR HINRIKSSON
Þegar Villa, besta vini hans Sveppa, er rænt af misyndismönnum tekur Sveppi til sinna ráða og fer sjálfur að leita.
Lesa meira
BJARNFREÐARSON - RAGNAR BRAGASON
Kvikmyndin Bjarnfreðarson er sjálfstæður lokakafli hinnar geysivinsælu og margverðlaunuðu Vaktaseríu. Bjarnfreðarson tekur upp þráðinn nokkrum árum eftir Fangavaktina, þar sem Georg losnar úr fangelsi. Georg á vitaskuld erfitt með að aðlagast lífinu fyrir utan veggi Litla Hrauns og neyðist til að flytja inn til Daníels eftir að móðir hans, Bjarnfreður, hafnar honum. Það verður svo allt vitlaust þegar Ólafur, sem býr hjá Daníel eins og ódæll unglingur, kemst að því að gamli yfirmaður hans er mættur á svæðið á nýjan leik.
Lesa meira
DESEMBER - HILMAR ODDSSON
Í byrjun desember snýr popparinn Jonni heim eftir nokkurra ára dvöl í Argentínu. Hann dreymir um að ná gamla bandinu sínu saman í upptökur á nýrri tónlist og hlakkar til að halda jól í faðmi fjölskyldunnar.
Lesa meira
Lesa meira
THE GOOD HEART - DAGUR KÁRI PÉTURSSON
Heimilislaus drengur (Lucas) kynnist úrillum kráareiganda (Jaques) sem hefur fengið fimm hjartaáföll sökum gjálífis. Jaques tekur Lucas undir væng sinn með það fyrir augum að arfleiða hann að kránni. Allt gengur eftir óskum þar til að drukkin flugfreyja (April) kemur áætlunum Jaques í uppnám.
Lesa meira
JÓHANNES - ÞORSTEINN GUNNAR BJARNASON
Í þessari hreinræktuðu gamanmynd leikur Laddi myndlistarkennarann Jóhannes sem upplifir dag sem ætlar engan endi að taka.
Lesa meira
Lesa meira
REYKJAVIK WHALE WATCHING MASSACRE - JÚLÍUS KEMP
Reykjavík Whale Watching Massacre segir frá hópi ferðamanna sem fara í hvalaskoðun við strendur Íslands. Þegar skipstjórinn deyr af slysförum flýr hinn áhafnarmeðlimurinn á eina björgunarbátnum, og eru ferðamennirnir því einir á báti. Þeim tekst að skjóta upp neyðarblysi, en svo óheppilega vill til að þeir einu sem sjá það eru fjölskylda hvalveiðimanna sem kann ekkert sérlega vel við hvalaskoðunarfólk, svo vægt sé til orða tekið.
Lesa meira
Lesa meira

