2009
BJARNFREÐARSON - RAGNAR BRAGASON
Kvikmyndin Bjarnfreðarson er sjálfstæður lokakafli hinnar geysivinsælu og margverðlaunuðu Vaktaseríu og það allra síðasta sem við munum sjá af þeim kumpánum Georg Bjarnfreðarsyni (Jón Gnarr), Ólafi Ragnari (Pétur Jóhann Sigfússon) og Daníel Sævarssyni (Jörundur Ragnarsson), sem hafa eldað saman grátt silfur í Nætur- Dag- og Fangavakt. Bjarnfreðarson tekur upp þráðinn nokkrum árum eftir Fangavaktina, þar sem Georg losnar úr fangelsi. Georg á vitaskuld erfitt með að aðlagast lífinu fyrir utan veggi Litla Hrauns og neyðist til að flytja inn til Daníels eftir að móðir hans, Bjarnfreður (Margrét Helga Jóhannsdóttir) hafnar honum. Það verður svo allt vitlaust þegar Ólafur, sem býr hjá Daníel eins og ódæll unglingur, kemst að því að gamli yfirmaður hans er mættur á svæðið á nýjan leik. Eins og gefur að skilja er kominn tími á uppgjör. Þremenningarnir eru allir á ákveðnum tímamótum í lífinu; Georg leitar uppruna síns, Ólafur finnur loksins rétta hillu í lífinu og Daníel þarf að horfast í augu við erfiðan sannleik um sjálfan sig. Samsíða þessu fá áhorfendur að kynnast uppvaxtarárum Georgs og hvernig hann, þökk sé pólitísku uppeldi Bjarnfreðar (Ágústa Eva Erlendsdóttir leikur Bjarnfreði á yngri árum), endaði sem það skrímsli sem áhorfendur hafa kynnst í Vöktunum. Þessir þræðir fléttast svo saman í eina stórskemmtilega sögu, sem hefur að geyma fjölmargar og óvæntar uppljóstranir. Bjarnfreðarson er leyfð öllum aldurshópum og virkar sem sjálfstætt verk, þó vitaskuld fái dyggir fylgjendur Vaktanna meira fyrir sinn snúð.
Titill: Bjarnfreðarson
English title: Mr. Bjarnfredarson
Tegund: Drama/Gamanmynd
Tungumál: Ísenska
Leikstjóri: Ragnar Bragason
Handritshöfundur: Jón Gnarr, Jóhann Ævar Grímsson, Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon, Ragnar Bragason
Aðalhlutverk: Jón Gnarr, Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon, Ágústa Eva Erlendsdóttir
Klipping: Sverrir Kristjánsson
Kvikmyndataka: Bergsteinn Björgúlfsson
Hljóð: Huldar Freyr Arnarsson
Tónlist: Pétur Þór Benediktsson
Framleiðandi: Magnús Viðar Sigurðsson, Kjartan Þór Þórðarson
Meðframleiðandi: Jón Gnarr, Jóhann Ævar Grímsson, Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon, Ragnar Bragason
Framleiðslufyrirtæki: Sagafilm
Vefsíða: http://www.sagafilm.is/en/production/view/item8934/, www.facebook.com/bjarnfredarson
Framleiðsluland: Ísland
Hljóð: Dolby Digital
Lengd: 109 mínútur
Upptökutækni: RED 4k
Sýningarmiðill: 35 mm
Sýningarhlutfall: 2.35:1
Frumsýnd: 26. desember 2009
Kvikmyndahátíðir
New Nordic Films, Göteborg, Svíþjóð, 4.-7. febrúar
Berlin International Film Festival, Markaðssýningar, Berlín, 11.-21. febrúar
Mill Valley Film Festival, Mill Valley, Bandaríkjunum, 7. - 17. október
