2010
KÓNGAVEGUR - VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
Kóngavegur 7 gerist í hjólhýsahverfi og segir frá atburðum sem eiga sér stað þegar Júníor snýr aftur heim til Íslands eftir þriggja ára fjarveru erlendis. Júnior kemur heim með ýmis vandræði í farteskinu og vonar að faðir hans geti bjargað því, en heimkoman reynist ekki vera alveg sú sem hann átti von á.
Titill: Kóngavegur
Enskur titill: King´s Road
Tegund: Gamanmynd, drama
Tungumál: Íslenska
Leikstjóri: Valdís Óskarsdóttir
Handritshöfundur: Valdís Óskarsdóttir
Aðalhlutverk: Björn Hlynur Haraldsson, Daniel Brühl, Gísli Örn Garðarsson, Hanna María Karlsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Kristbjörg Kjeld, Margrét Vilhjálmsdóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Ólafur Egilsson, Rúnar Freyr Gíslason, Sigurður Sigurjónsson, Þröstur Leó Gunnarsson.
Klipping: Valdís Óskarsdóttir
Kvikmyndataka: Bergsteinn Björgúlfsson
Hljóðhönnun: Pétur Einarsson, Birgir Tryggvason, Árni Gústafsson
Tónlist: Lay Low og Pétur Hallgrímsson
Framleiðendur: Árni Filippusson, Davíð Óskar Ólafsson, Hreinn Beck
Meðframleiðandi: Þorvarður Björgúlfsson
Framleiðslufyrirtæki: Mystery Island
Meðframleiðslufyrirtæki: Kukl, Vesturport
Sala og dreifing innanlands: Sena
Framleiðsluland: Ísland
Lengd: 99 mínútur
Upptökutækni: Red
Sýningarmiðill: 35 mm, Digital Cinema
Sýningarhlutfall: 1.85:1
Frumsýnd: 26. mars 2010
Kvikmyndahátíðir
2010:
Locarno International Film Festival, Locarno, Sviss, 3. - 13. ágúst.
Molodist International Film Festival, Kiev, Úkraínu, 23. - 31. október.
2011:
Göteborg International Film Festival, Göteborg, Svíþjóð, 28. janúar - 7. febrúar.
Transilvania International Film Festival, í keppni, Transilvania, Rúmeníu, 12. - 19. júní.
Nordlichter XII, Dresden, Þýskalandi, 8. - 14. desember.

