Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

NBS

2010

bodberi_still

BOÐBERI - HJÁLMAR EINARSSON

Háttsettum mönnum íslensku þjóðarinnar hafa verið sýnd banatilræði í röð skotárása. Mikil skelfing grípur um sig í landinu, sérstaklega meðal þeirra sem meira mega sín.

Páll (Darri Ingólfsson), sem er skyggn, flækist inn í fléttu valdamikilla manna og sértrúarhópa sem standa að ráðabruggi sem skaðað gæti fjölda fólks og valdið algjöru samfélagshruni.

Boðberi var kvikmynduð fyrir íslenska bankahrunið 2008 og var spádómur um meiriháttar glundroða í íslensku samfélagi. Sumt hefur þegar komið fram, en vonandi mun ekki allt rætast...

Titill: Boðberi
Enskur titill: Messenger
Tegund: Spenna, drama
Tungumál: Íslenska

Leikstjóri: Hjálmar Einarsson
Handritshöfundur: Hjálmar Einarsson
Aðalhlutverk: Darri Ingólfsson, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Pétur Einarsson, Jón Páll Eyjólfsson, Hjalti Rögnvaldsson, Magnús Jónsson, Móeiður Júíusdóttir, Gunnar Eyjólfsson
Kvikmyndataka: Edwin Krieg
Klipping: Jóhannes Tryggvason
Hljóðhönnun: Birgir Tryggvason
Tónlist: Karl Pestka
Framleiðandi: Hákon Einarsson, Hjálmar Einarsson
Meðframleiðandi: Darri Ingólfsson, Sigurbjörn Magnús Gunnlaugsson, Þorvarður Björgúlfsson
Framleiðslufyrirtæki: Hersing kvikmyndafélag
Sala og dreifing: Sam Film
Vefsíða: www.bodberi.com

Framleiðsluland: Ísland
Hljóð: Dolby Digital
Lengd: 96 mínútur
Sýningarhlutfall: 2.35:1
Frumsýnd: 7. júlí 2010