Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

2011

Algjor_Sveppi_og _tofraskapurinn

ALGJÖR SVEPPI OG TÖFRASKÁPURINN

Lítil stelpa hverfur inn í gamlan töfraskáp og vinirnir Sveppi, Villi og Gói taka höndum saman um að finna leið til að bjarga henni. Á leið sinni lenda þeir í ótrúlegum ævintýrum þar sem þeir læra á mikilfenglegann mátt töfraskápsins, svindla sér inn á Þjóðminjasafnið, aka um á ofurhjólum og fljúga hátt yfir Reykjavík. Lesa meira
 
Either_Way_main_still

Á ANNAN VEG - HAFSTEINN GUNNAR SIGURÐSSON

Á annan veg er lágstemmd og mannleg kómedía með dramatískum undirtón. Myndin gerist á ótilgreindum fjallvegum á 9. áratugnum og fjallar um tvo starfsmenn Vegagerðarinnar sem vinna við að mála merkingar á malbikaða vegi, slá niður tréstikur í vegkanta, fylla í holur og annað tilheyrandi. Lesa meira
 
Borgríki

BORGRÍKI - OLAF DE FLEUR

Ung lögreglukona svipt ástinni, bifvélavirki í hefndarhug, glæpakóngur með veikt hjarta og spillt fíkniefnalögga eru í þann mund að breyta lífi hvers annars til frambúðar. Lesa meira
 
Volcano_Still_klippt

ELDFJALL - RÚNAR RÚNARSSON

Kvikmyndin Eldfjall fjallar um Hannes, 67 ára gamlan mann sem er að komast á eftirlaunaaldur. Hann er karlmaður af gamla skólanum, einangraður frá fjölskyldunni og heimilinu og þarf nú að takast á við nýtt hlutverk í lífinu. Eldfjall er þroskasaga manns sem þarf að takast á við val fortíðarinnar og erfiðleika nútímans til að eiga möguleika á framtíð.

Lesa meira
 
LoV_Thor_framefromfilm_03_august2010_WIP_Klippt

HETJUR VALHALLAR - ÞÓR - ÓSKAR JÓNASSON

Dirfskufullur unglingur vopnaður töfrahamri og goðin í Valhöll taka höndum saman gegn illum öflum Heljar.

Lesa meira
 
polite_people_still

KURTEIST FÓLK - ÓLAF DE FLEUR

Nýfráskilinn verkfræðingur í Reykjavík lýgur sig inn í aðstæður um að geta bjargað sveitarfélagi á Vesturlandi frá glötun með því að koma sláturhúsi staðarins aftur í gang, óafvitandi gengur hann inn í miðja heimstyrjöld sem ríkir í pólitík og einkalífi fólksins í bæjarfélaginu. Lesa meira
 
Our_Own_Oslo

OKKAR EIGIN OSLÓ - REYNIR LYNGDAL

í myndinni fylgjumst við með tveimur gerólíkum manneskjum gera tilraun til þess að stofna til náinna kynna; Haraldi (Þorsteinn Guðmundsson) verkfræðingi hjá Marel og Vilborgu (Brynhildur Guðjónsdóttir), bankastarfsmanni og einstæðri móður.

Lesa meira

 
Stormland_Still3

ROKLAND - MARTEINN ST. ÞÓRSSON

Böddi Steingríms snýr aftur heim á Sauðárkrók eftir tíu ára námsdvöl í Þýskalandi og fer að kenna við Fjölbrautaskólann. En Krókurinn reynist of lítill staður fyrir svo stóryrtan og hagyrtan mann og Bödda er sagt upp störfum eftir að hafa gengið fram af nemendum í helgarferð þar sem ungfrú Norðurland fótbrotnaði á söguslóðum Grettis Ásmundarsonar í Drangey. Lesa meira