Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

The Sea

ELDRI KVIKMYNDIR Í STAFRÓFSRÖÐ

79_stod

79 AF STÖÐINNI - ERIC BALLING

79 af stöðinni er kvikmynd frá 1962 sem er byggð á samnefndri skáldsögu Indriða G. Þorsteinssonar. Í myndinni segir frá tregafullum kynnum Ragnars sem er nýfluttur á mölina til að starfa sem leigubílstjóri og hinnar dularfullu en óhamingjusömu borgarstúlku Gógó. Lesa meira
 
Hilmir101

101 REYKJAVÍK - BALTASAR KORMÁKUR

Hlynur Björn, söguhetjan í 101 Reykjavík, er Reykvíkingur á fertugsaldri og býr í móðurhúsum. Líf hans er í föstum skorðum þar til Lola, spænskur flamíngó kennari með lesbískar hvatir, flyst inn til þeirra mæðgina. Lesa meira
 
Graveyard#14_copy

A LITTLE TRIP TO HEAVEN - BALTASAR KORMÁKUR

Maður með vafasama fortíð deyr í harkalegu bílslysi utan alfaraleiðar. Lesa meira
 
agnes

AGNES - EGILL EÐVARÐSSON

Kvikmyndin Agnes gerist á tímum miskunarlausrar stéttaskiptingar og grimmra fordóma. Agnes er ung vinnukona í vist á setri sýslumanns. Hún býr yfir frjálslegu fasi og fegurð sem vekur bæði fýsn og fordóma yfirboðara hennar. Hún fellur fyrir Natani Ketilssyni sem er djarftækur kvennamaður og sjálfmenntaður lyflæknir. Lesa meira
 
Atomstodin

ATÓMSTÖÐIN - ÞORSTEINN JÓNSSON

Atómstöðin er byggð á samnefndri skáldsögu Halldórs Laxness. Myndin fjallar um aðlögun ungrar sveitastúlku að lífinu í Reykjavík eftir seinna stríð og kynni hennar af litríkum persónum sem á vegi hennar verða. Inn í söguna fléttast ýmis hitamál síns tíma og ádeila á borgarleg gildi og vestrænt siðferði. Lesa meira
 
a_hjara-veraldar

Á HJARA VERALDAR - KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR

Á hjara veraldar er fyrsta kvikmynd Kristínar Jóhannesardóttur og vakti athygli á sínum tíma fyrir nýstárleg efnistök og óvenjulega nálgun. Í myndinni stillir Kristín margvíslegum andstæðum saman og kafar í kjölinn á íslenskri þjóðarvitund. Lesa meira
 
cold fever - choir

Á KÖLDUM KLAKA - FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON

Á köldum klaka fjallar um ungan japana sem ferðast um Ísland í Citröen bifreið til að halda minningarathöfn um foreldra sína er létust á ferðalagi Ísland. Á vegi unga mannsins verða mörg furðuleg fyrirbæri þar sem hann þarf að takast á við íslenska veðráttu, bandaríska túrista og íslenska sviðhausa.

Lesa meira
 
Benjamín dúfa

BENJAMÍN DÚFA - GÍSLI SNÆR ERLINGSSON

Sagan Benjamín dúfa, sem hlaut íslensku barnabókaverðlaunin 1992, segir frá nokkrum vinum í litlu hverfi. Um tíma er lífið eitt óslitið ævintýri en það koma brestir í vináttuna, ævintýrið hættir skyndilega og kaldur raunveruleikinn tekur við. Lesa meira
 
movie_days

BÍÓDAGAR - FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON

Myndin gerist árið 1964 og aðalsöguhetjan er Tómas, 10 ára reykvískur strákur með hugmyndaflugið í lagi. Tómas og vinir hans heillast af hetjum og ævintýrum hvíta tjaldsins; kúrekar, hrollvekjur, Jesús Kristur, Adolf Hitler og meira segja íslensk Hollywood-stjarna skilja eftir varankeg merki á sálum ungra manna í mótun Lesa meira
 
beowulf34

BJÓLFSKVIÐA - STURLA GUNNARSSON

Myndin byggir lauslega á miðaldarkvæðinu Bjólfskviðu og segir frá blóðugri baráttu norrænnar hetju við mannskætt tröll. Lesa meira
 
Blossi

BLOSSI/810551 - JÚLÍUS KEMP

Myndin gerist árið 2000 og fjallar um eirðarlaus borgarbörn í leit að skemmtun. Þegar leiðir hinnar undurfögru Stellu og alkahólistans Robba liggja saman byrja hlutirnir að gerast. Þau enda á hringferð um landið á stolnum bíl með tilheyrandi óvæntum uppákomum. Lesa meira
 
children_of_nature

BÖRN NÁTTÚRUNNAR - FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON

Í Börnum náttúrunnar segir frá rosknum bónda sem bregður búi og flyst á elliheimili í Reykjavík eftir að hafa búið í sveit allt sitt líf. Hann hittir aftur gamla vinkonu sína og saman strjúka þau af elliheimilinu til að halda á æskuslóðir. Myndin fjallar á mannlegan, fallegan og grátbroslegan hátt um fylgifiska þess að eldast, vináttu sem aldrei deyr og tengsl manns og umhverfis.

Lesa meira
 
dalalif_dvdklippt

DALALÍF - ÞRÁINN BERTELSSON

Dalalíf er önnur myndin í þríleik Þráins Bertelssonar um uppátækjasömu iðjuleysingjana Þór og Danna. Af óbilandi bjartsýni taka þeir að sér að reka stórbú í Kjósinni á meðan bóndinn bregður sér í bændaför til Noregs. Þeir félagar þreytast þó fljótt á venjulegum bústörfum og auglýsa þess í stað "Dalalífsvikur" fyrir borgarbúa.

Lesa meira

 
Dansinn

DANSINN - ÁGÚST GUÐMUNDSSON

Í Dansinum segir frá brúðkaupi í Færeyjum sem stendur í þrjá daga. Allt virðist ætla að ganga sinn vanagang þar til ofsaveður strandar breskum togara við eyna. Brúðkaupsgestir sameinast um að koma skipverjum á land. Þegar líða tekur á veisluna fara fleiri undarlegir og jafnvel válegir atburðir að gerast, sem veldur því að gestirnir telja að jafnvel sjálfur djöfullinn hafi gerst boðflenna í brúðkaupinu.

Lesa meira

 
didda_og_daudi_kotturinn

DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN - HELGI SVERRISSON

Didda er níu ára gömul stelpa sem fellur einn daginn ofan í lýsistunnu með þeim afleiðingum að hún þarf ekki lengur að nota gleraugu. Hún er meira að segja farin að sjá betur en allir aðrir, en sá hæfileiki kemur í góðar þarfir þegar Didda fer að eltast við glæpamenn sem hafa rænt hrekkjusvíninu bróður hennar og vini hans.

Lesa meira
 
Dis

DÍS - SILJA HAUKSDÓTTIR

Hún er 23ja ára og á krossgötum. Býr með vinkonu sinni Blævi í miðbæ Reykjavíkur. Vinnur á Hótel Borg en er enn að fikra sig áfram á menntabrautinni og á torfærum vegum ástarinnar. Þetta er Dís; óvenjuleg venjuleg stelpa, eða hvað? Lesa meira
 
devils_island

DJÖFLAEYJAN - FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON

Djöflaeyjan er byggð á metsölubókum Einars Kárasonar („Þar sem djöflaeyjan rís“ og „Gulleyjan“) og segir frá sorgum og sigrum stórfjölskyldu Karólínu spákonu. Myndin gerist á miklum umbrotatímum í íslensku samfélagi á árunum eftir seinna stríð og er saga um fjölskylduátök, vináttu, lífsbaráttuna, ástina og sorgina. Lesa meira
 
dream_hunters_draumadisir

DRAUMADÍSIR - ÁSDÍS THORODDSEN

Draumadísir er gamansöm Reykjavíkursaga um tvær tvítugar vinkonur sem takast á við drauma sína í viðsjárverðu umhverfi íslensks hversdagslífs og nútímalegra viðskiptahátta. Lesa meira
 
Ein_stor_fjolskylda_plagat

EIN STÓR FJÖLSKYLDA - JÓHANN SIGMARSSON

Myndin gerist í Reykjavík og segir frá misheppnuðu sambandi Jónasar Þórs við dekurdósina Maríu. Jónas ákveður að slíta sambandinu við Maríu og flytja út frá fjölskyldunni ásamt hundinum sínum Lilju Rós. Hann leigir sér lítið herbergi úti í bæ og fer að lifa lífinu á krítarkorti tengdaföðurs síns. Lesa meira
 
Einkalif_

EINKALÍF - ÞRÁINN BERTELSSON

Einkalíf fjallr um þrjú ungmenni, sem komast yfir kvikmyndatökuvél og taka til við að gera heimildarmynd um foreldra sína og ættingja, sem virðast við fyrstu sýn vera ofurvenjulegt fólk. Í ljós kemur þó þegar myndavélinni er beint að einkalífi fólksins, að undir sléttu og felldu yfirborði búa litríkir persónuleikar, sem hver hefur sinn djöful að draga. Lesa meira
 
Eins_og_skepnan_deyr_klippt

EINS OG SKEPNAN DEYR - HILMAR ODDSSON

Helgi snýr til æskustöðva sinna til að ljúka fyrstu skáldsögu sinni og skjóta að minnsta kosti eitt hreindýr. Draumurinn um að fella dýrið tekur hug hans allan, en dýrið sést hvergi og fyllist hann örvæntingu. Helgi er drukkinn og það er komin nótt og hann heldur sig sjá hreindýr. Hann ákveður að taka til sinna ráða... Lesa meira
 
Angels_of_the_universe

ENGLAR ALHEIMSINS - FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON

Páll er lífsglaður ungur maður. Hann er hæfileikaíkur og framtíðin blasir við honum. Þegar bera fer á einkennum geðveiki missir Páll tökin á lífinu og ekkert blasir við nema innilokuð tilvera hins geðsjúka. Lesa meira
 
falcons17-35

FÁLKAR - FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON

Fálkar fjallar um leyndardómsfullan mann með vafasama fortíð sem kemur til Íslands í þeim tilgangi að enda líf sitt. Hann hittir skrýtna stúlku að nafni Dúa og telur að hún gæti jafnvel verið dóttir sín. Lesa meira
 
Fiasko-2

FÍASKÓ - RAGNAR BRAGASON

Fíaskó er fyrsta kvikmynd Ragnars Bragasonar.Hún skiptist í þrjá kafla og fjallar um þrjár kynslóðir í sömu fjölskyldu sem búa undir sama þaki í miðbæ Reykjavíkur. Lesa meira
 
Foxtrot

FOXTROT - JÓN TRYGGVASON

Foxtrot er spennumynd sem gerist í sandauðnum Íslands, þar sem barist er upp á líf og dauða. Aðalpersónur myndarinnar eru hálfbræðurnir Tommi og Kiddi, óharnaði unglingurinn og fallna fótboltastjarnan. Þegar Kiddi ákveður að taka Tomma með sér í peningaflutning út á land, upphefst spennandi atburðarrás sem getur aðeins endað á einn veg. Lesa meira
 
Gemsar

GEMSAR - MIKAEL TORFASON

Ein nótt. Einn dagur og önnur nótt í lífi nokkurra krakka í Breiðholti. Það er auðvitað partý. Miðbæjarfyllerí og árekstrar við skilningslausa foreldra og ökukennara sem er algjör fokkings pervert. Viltu vita meira? Lesa meira
 
Gilitrutt_MBL

GILITRUTT - JÓNAS JÓNASSON

Gilitrutt er barna- og fjölskyldumynd sem byggir á íslenskum þjóðsögum og segir frá tröllinu Gilitrutt. Myndin var frumsýnd árið 1957 í Bæjarbíói Hafnarfirði og er eina íslenska kvikmyndin sem hefur verið frumsýnd þar á bæ. Lesa meira
 
Gullsandur

GULLSANDUR - ÁGÚST GUÐMUNDSSON

Gullsandur er gamanmynd með pólitisku ívafi sem fjallar smábæ á suðuströnd Íslands og hvernig gullfundur í nærliggjandi söndum umturnar hinum rólega smábæjaranda í sannkallaða ringulreið.

Lesa meira
 
Gasaparty_klippt

GÆSAPARTÝ - BÖÐVAR BJARKI PÉTURSSON

Gæsapartí fjallar um unga konu sem ætlar að giftast inní sértrúarsöfnuð. Bróðir hennar, sem er í sama söfnuði og mannsefnið, ætlar að sjá til þess að gæsapartíið, sem kolgeggjaðar vinkonur hennar halda henni, verði Guði þóknanlegt. Sem mótspil við afskiptum safnaðarins sýna vinkonurnar henni rækilega fram á hvers konar lífi hún er að fórna fyrir hnapphelduna og hvað bíður hennar. Lesa meira
 
Hadda_Padda_klippt

HADDA PADDA - GUNNAR ROBERT HANSEN

Hadda Padda er byggð á samnefndum sorgarleik Guðmundar Kamban og fjallar um ást Hrafnhildar – Höddu Pöddu – og síðar örvæntingu og hefnd eftir svik unnusta hennar, Ingólf. Lesa meira
 
Hafið

HAFIÐ - BALTASAR KORMÁKUR

Útgerðarmaðurinn Þórður er aðalatvinnurekandinn í sjávarþorpi úti á landi og hefur ávallt stjórnað fjölskyldu sinni og plássinu eftir sínu höfði. Hann kallar börnin sín þrjú á sinn fund og ætlar sem fyrr að leggja þeim línurnar um þeirra hlut varðandi framtíð fyrirtækisins; fyrirtækisins sem er honum allt. Lesa meira
 
Sacred_Mound

HIN HELGU VÉ - HRAFN GUNNLAUGSSON

Þegar móðir Gests heldur erlendis er hann sendur í sveit á afskekktri eyju. Á eynni kemst Gestur í kynni við tvítuga heimasætu sem er reiðubúin til að ganga honum í móðurstað. Samband þeirra þróast hins vegar á aðra leið í huga Gests, sem óðfluga nálgast kynþroskaaldur, og verður drengurinn smám saman ástfanginn af stúlkunni.

Lesa meira
 
Hrafninn_flygur

HRAFNINN FLÝGUR - HRAFN GUNNLAUGSSON

Hrafninn flýgur gerist á Íslandi stuttu eftir landnám og fjallar um írskan mann sem fer til Íslands til að hefna sín á víkingum sem drepið höfðu foreldra hans og rænt systur hans þegar hann var á barnsaldri. Lesa meira
 
Hus_i_svefni_klippt

HÚS Í SVEFNI - GUÐMUNDUR KAMBAN

Myndin Hús í svefni er sett upp eins og draumur þar sem fullorðinn maður ekur að sveitasetri í Danmörku. Hann stöðvar bifreiðina og lítur í kringum sig glaður yfir að vera kominn aftur heim. Hugur hans reikar og rifjar upp löngu liðna tíð. Í húsinu eru allir sofandi en maðurinn kemur sér fyrir í hægindastól og endurminningar hans glæða húsið lífi liðinna ára. Lesa meira
 
husid_kona_klippt

HÚSIÐ - EGILL EÐVARÐSSON

Ungt par fær inni í gömlu húsi í Reykjavík og verður þess fljótlega vart að húsinu fylgir eitthvað sem er þeim yfirsterkara. Forsaga hússins tekur völdin. Lesa meira
 
Hviti_vikingurinn

HVÍTI VÍKINGURINN - HRAFN GUNNLAUGSSON

Hvíti víkingurinn gerist á tímum mikilla átaka milli ásatrúar og kristni, þegar Ólafur Tryggvason konungur hyggst nota hinn nýja sið, kristnina, til að brjóta undir sig Noreg og Ísland. Hann heldur Emblu í gíslingu í Noregi meðan Askur unnusti hennar er á Íslandi að sannfæra þarlenda um að taka kristna trú og beygja sig undir vald Ólafs. Lesa meira
 
hvitir_mavar2

HVÍTIR MÁVAR - JAKOB F. MAGNÚSSON

Hvítir mávar er poppháðsdeila um endurfundi og gamlan rómantískan ástarþríhyrning. Lesa meira
 
i_fadmi_hafsins

Í FAÐMI HAFSINS - JÓAKIM REYNISSON OG LÝÐUR ÁRNASON

Í myndinni er sögð saga aflaskipstjórans Valdimars sem gengur að eiga brúðina Unni. Á brúðkaupsnóttina gerast óvæntir atburðir og líf ungu hjónanna tekur ævintýralegu stefnu á vit hafsins. Lesa meira
 
Ikingut

IKÍNGUT - GÍSLI SNÆR ERLINGSSON

Undarlega veru rekur á ísjaka að ströndum afskekkts byggðarlags á Íslandi. Veturinn hefur verið erfiður og þröngt er í búi og ekki þykir þorpsbúum ósennilegt að þessi vera og dularfull hegðan hennar sé ástæðan fyrir harðærinu. Þegar drengurinn Bóas vingast við hinn ókunna gest reynist hann færa fólkinu blessun, gleði og björg í bú. Lesa meira
 
ingalo

INGALÓ - ÁSDÍS THORODDSEN

Ingaló vinnur hjá föður sínum á trillunni, en feðginin eiga ekki skap saman. Eftir ball í þorpinu sem endar í slagsmálum milli þorpsbúa og áhafnar á aðkomuskipinu Matthildi ÍS 167, er Ingaló send til Reykjavíkur, en yngri bróðir hennar, Sveinn, strýkur að heiman.

Lesa meira

 
eleven_men_out_bjornog_family

STRÁKARNIR OKKAR - RÓBERT I. DOUGLAS

Strákarnir okkar fjallar um Óttar Þór, aðalstjörnu KR inga sem veldur miklu írafári þegar hann játar fyrir liðsmönnum sínum á miðju leiktímabili að hann sé hommi. Lesa meira
 
elefant

VOKSNE MENNESKER - DAGUR KÁRI PÉTURSSON

Voksne Mennesker er gamanmynd sem fjallar um óábyrga grafíti listamanninn Daníel. Hann býr í Kaupmannahöfn og vinnur við að mála ástarjátningar á veggi borgarinnar. Lesa meira
 

 

 

efnisyfirlit síðunnar