Leikið sjónvarpsefni í framleiðslu
ÁVAXTAKARFAN ? SÆVAR GUÐMUNDSSON
Ávaxtakarfan eru barnaþættir fyrir sjónvarp. Þeir fjalla um samskipti og taka sérstaklega á einelti og hvernig eigi að taka á því. Hvernig maður geti bakkað út úr óæskilegum aðstæðum sem maður hefur komið sér í en þó með fullri reisn. Þættirnir eiga að kenna börnum samskipti og leiðir til að vinna með tilfinningar og hegðun. Þættirnir eru fyrir börn á aldrinum 2-8 ára.
Aðstæðurnar sem ávextirnir lenda í eru raunverulegar aðstæður sem við sjálf glímum við dags daglega í fjölmenningarlegu samfélagi.
Titill: Ávaxtakarfan
Enskur titill: The Frootz (eða Fruttyland)
Tegund: Sjónvarpsþáttaröð fyrir börn
Leikstjóri: Sævar Guðmundsson
Handritshöfundur: Kristlaug María Sigurðardóttir
Framleiðendur: Kristlaug María Sigurðardóttir, Einar Speight
Framleiðslufyrirtæki: Kassinn okkar ehf
Meðframleiðslufyrirtæki: Móðurfélagið, SENA

