LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI
HEIMSENDIR - RAGNAR BRAGASON
Heimsendir kemur úr smiðju sömu manna og færðu okkur Vaktaseríurnar sem er vinsælasta sjónvarpsefni sem framleitt hefur verið á Íslandi. Í þessari einstöku seríu kynnumst við nýju persónugallerýi; sjúklingum og starfsmönnum á afskekktri geðdeild árið 1992. Aðalsöguhetjan Einar, leikinn af Halldóri Gylfasyni, stendur fyrir byltingu og sjúklingarnir taka yfir hælið með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Titill: Heimsendir
Enskur titill: World‘s End
Tegund: Gaman, Drama
Leikstjóri: Ragnar Bragason
Handrit: Ragnar Bragason, Jón Gnarr, Pétur Jóhann Sigfússon, Jörundur Ragnarsson, Jóhann Ævar Grímsson
Framleiðendur: Kjartan Þór Þórðarson, Magnús Viðar Sigurðsson, Ragnar Bragason, Jóhann Ævar Grímsson, Jón Gnarr, Pétur Jóhann Sigfússon, Jörundur Ragnarsson
Framleiðslufyrirtæki: Sagafilm
Fjöldi þátta í þáttaröð: 8
Lengd: 240 mínútur (8 X 30 mínútur)
Upptökutækni: RED
Annað efni
Efnistök og frekari upplýsingar

