2010
KNOWLEDGY - HREFNA HAGALÍN OG KRISTÍN BÁRA HARALDSDÓTTIR
Knowledgy er kolsvört kómedía sem fjallar um skiptinemann Michael frá Nýfundnalandi, sem stundar nám í kvikmyndaskóla og leigir herbergi hjá pari í Reykjavík. Í þeim tilgangi að ganga í bandarískan sértrúarsöfnuð kallar íslenska parið til hjón frá Los Angeles. Michael fær leyfi til að gera heimildarmynd um innvígsluferlið, en flækist í kjölfarið í afar undarlega atburðarrás.
Titill: Knowledgy
Enskur titill: Knowledgy
Tegund: Svört kómedía
Tungumál: Enska
Leikstjórn: Hrefna Hagalín, Kristín Bára Haraldsdóttir
Handrit: Hugleikur Dagsson
Aðalhlutverk: Leo Fitzpatrick, Jody Flader, Noua M. Phoenix, Ingvar E. Sigurðsson, Nína Dögg Filippusdóttir
Klipping: Eva Lind Höskuldsdóttir
Kvikmyndataka: Árni Filippusson
Hljóð: Birgir Tryggvason
Tónlist: Krummi Björgvinsson
Framleiðendur: Hrefna Hagalín, Kristín Bára Haraldsdóttir
Framleiðslufyrirtæki: Krúnk Productions
Vefsíða: http://www.facebook.com/pages/Knowledgy/152012314832816?ref=ts
Framleiðsluland: Ísland
Hljóð: Dolby Digital
Lengd: 22,10 mínútur
Sýningarmiðill: HD CAM Digi Beta
Upptökutækni: 2 K RED
Sýningarhlutfall: 1:2,35
Frumsýnd: 27. september 2010 á RIFF
Hátíðarþátttaka
2010:
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, Reykjavík, Íslandi, 23. september - 3. október
Annað efni
Umsögn leikstjóra (á ensku)
Knowledgy plakat

