Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

NBS

2011

Bon_Appetit_Still1

BON APPÉTIT - HELENA STEFÁNSDÓTTIR

Þegar hin 18 ára Urður er dregin inn í veröld hinnar fertugu Mínervu, hefst ferðalag um ógnvænlega en spennandi staði, þar sem skilin milli draums og veruleika eru óljós.

Aðdráttarafl Mínervu er sterkt og þrátt fyrir að Urður sé óttaslegin er hún á sama tíma forvitin að kynnast því líferni sem Mínerva stundar, en forvitnin verður til þess að hún þarf að leysa furðuleg, og áður óþekkt vandamál.

Titill: Bon Appétit
Enskur titill: Bon Appétit
Tegund: Stuttmynd
Tungumál: Enska, íslenska

Leikstjóri: Helena Stefánsdóttir
Handrit: Helena Stefánsdóttir
Aðalhlutverk: Kolfinna Nikulásdóttir, Katie Balwin-Eng, Stefán Jónsson
Klipping: Arnar Steinn Friðbjarnarson
Kvikmyndataka: Árni Filippusson
Hljóðhönnun: Kjartan Kjartansson
Tónlist: Irene Greenwood Powlsen
Framleiðendur: Arnar Steinn Friðbjarnarson, Helena Stefánsdóttir
Meðframleiðendur: Þorvarður Björgúlfsson, Kjartan Kjartansson
Framleiðslufyrirtæki: Wonderland Films
Meðframleiðendur: Kukl ehf, Bíóhljóð, Kung Fu Films
Styrkt af: Kvikmyndamiðstöð Íslands

Framleiðsluland: Ísland
Hljóð: Dolby Digital 5.1
Lengd: 15 mínútur
Sýningarmiðill: Digital Print, 35mm, Beta SP, DigitaBetaCam
Upptökutækni: RedOne
Sýningarhlutfall: 1:2,33
Frumsýnd: 2011
Alþjóðleg frumsýning: 2011

Hátíðir

2011:
Sao Paulo International Short Film Festival, Sao Paulo, Brasilíu, 25. ágúst - 2. september.
Reykjavík International Film Festival, Reykjavík, Íslandi, 22. september - 2. október.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar