Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

myrin

Alþjóðlegar kvikmyndahátíðir

ALÞJÓÐLEGAR KVIKMYNDAHÁTÍÐIR

Kvikmyndamiðstöð ræktar tengsl við allar helstu kvikmyndahátíðir og kvikmyndastofnanir víðs vegar um heim. Fjöldi kvikmyndahátíða í heiminum eru yfir tuttuguþúsund á hverju ári og við forgangsröðun á samstarfsaðilum styðst Kvikmyndamiðstöðin við flokkun alþjóðlegra samtaka kvikmyndaframleiðenda (International Federation of Film Producers Association; FIAPF) um s.k. A – hátíðir í hverju landi eða svæði fyrir sig.

Meðal helstu hátíða sem lögð er áhersla á kynningarstarfi Kvikmyndamiðstöðvar eru alþjóðlegu kvikmyndahátíðirnar í Cannes, Berlin, Karlovy Vary, San Sebastian, Feneyjum; Pusan, Shanghai; Melbourne, Toronto, Moskvu. Á Norðurlöndunum eru það Gautaborg og Haugasund þar sem sérstök áhersla er lögð á kynningar nýrra norrænna mynda fyrir helstu alþjóðlegum kaupendum og hátíðum.

Á hverju ári er unnið með rúmlega 150 hátíðum. Nordisk Panorama er árleg hátíð fyrir norrænar stutt- og heimildamyndir en hún er haldin til skiptis í Bergen, Malmö, Oulu, Árósum og Reykjavík en hér verður hún næst haldin haustið 2009 og þá í tuttugasta sinn. Auk kvikmyndahátíðanna eru margar hátíðir þar sem íslenskar myndir eru sérstaklega kynntar, ýmist sem hluti formlegra kvikmyndahátíða eða í samstarfi við fagaðila á hverjum stað fyrir sig. Sendiráð eiga þar oft milligöngu og hefur Kvikmyndamiðstöð notið góðs samstarfs við utanríkisráðuneytið um kynningar.

Kvikmyndamiðstöðin er samstarfsaðili norrænu kvikmyndastofnanna í Scandinavian Films um kynningar utan Norðurlandanna. Undir því merki deila stofnanirnar sameiginlegri aðstöðu á kvikmyndahátíðunum í Cannes, Berlín og Toronto auk margra tilfallandi verkefna. European Film Promotion eru samtök evrópskra kynningarmiðstöðva og einbeita sér aðallega að kynningum utan Evrópu, auk þess að stuðla að samstarfi fagaðila innan álfunnar s.s. Producer on the Move í Cannes þar sem kynntir eru framleiðendur og Shooting Star í Berlín þar sem ungir leikarar eru kynntir sérstaklega. Yfirlit yfir hátíðir þar sem íslenskar myndir voru sýndar á s.l. ári:

ALÞJÓÐASAMTÖK KVIKMYNDAFRAMLEIÐENDA (FIAPF)

Alþjóðasamtök kvikmyndaframleiðenda gefa út upplýsingar á hverju ári um svo kallaðar A-hátíðir. Það eru alþjóðlegar kvikmyndahátíðir sem þessi samtök viðurkenna. Á heimasíðu samtakanna má lesa um þessar hátíðir, þær eru fyrir kvikmyndir, stutt- og heimildamyndir.

http://www.fiapf.org

Filmkontakt Nord

Á heimasíðu Filmkontakt Nord er listi yfir stutt- og heimildamyndahátíðir undir tenglinu International Dates & Deadlines. Hægt er að skoða listann annars vegar út frá því hvenær hátíðirnar eru haldnar og hins vegar hvenær á að sækja um. Á síðu Filmkontakt Nord má einnig finna upplýsingar um helstu stutt- og heimildamynda markaðina, námskeið, Nordisk Panorama og margt fleira.

http://www.filmkontakt.dk/fkn_site/