Kvikmyndamiðstöð íslands

Kvikmyndir í þróun

EYES OF THE THIEF

Palestína 2002 – Tareq, einsamall andspyrnumaður í bænum Sebastia skýtur 13 ísraelska hermenn. Hann er handtekinn og dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir annan glæp sem hann hefur ekki framið kvöldið sem ísraelska innrásin á vesturbakkann hefst.

Tíu árum seinna kemur hann til baka í leit að dóttur sinni og hittir fyrir unga stúlku á barmi lífs vegna ofbeldis og Adel sjálfskipaðan þorpshöfðingja sem stjórnar sínu fólki með frekar vafasömum reglum.

Lesa meira

GRAFARÞÖGN

Spennumynd byggð á skáldsögu eftir Arnald Indriðason. Erlendur rannsóknarlögreglumaður (Mýrin) rannsakar uppruna beina, sem finnast í grunnri gröf á byggingarsvæði í úthverfi Reykjavíkur. Rannsóknin leiðir hann aftur í tímann til síðari heimstyrjaldarinnar þegar bandaríski herinn var með herstöð á Íslandi.

Lesa meira

HARRY & HEIMIR: MORÐ ERU TIL ALLS FYRST

Þokkadísin Díana Klein leitar ásjár hjá einkaspæjurunum Harrý og Heimi, þar sem faðir hennar, sem er veðurathugunarmaður á Regingnípu, virðist hafa horfið sporlaust. Harrý og Heimir leggja í leiðangur upp á hálendið og tekst að stöðva svívirðilegt samsæri danskra skíðaáhugamanna um að stela íslenska hálendinu og flytja það úr landi.

Lesa meira

KALT VOR

Hugi hefur fundið skjól frá flækjum lífsins í litlu, kyrrlátu þorpi úti á landi, sækir AA fundi, lærir portúgölsku og kann ágætlega við sig í fásinninu. Þegar hann fær símhringingu frá föður sínum sem boðar komu sína er hið einfalda líf skyndilega í uppnámi.

Lesa meira

MAGNÝ

Magdalena lifir einmanalegu lífi, hún er atvinnulaus og ennþá inni í skápnum. Til að drepa tímann byrjar hún að fara í jarðarfarir ókunnugs fólks. En vegir ástarinnar eru órannsakanlegir því þegar Magdalena hittir Grétu, sína fyrstu og forboðnu ást, kemur í ljós að lengi lifir í gömlum glæðum.

Lesa meira

SILUNGAPOLLUR

Tvíburasystkinin  Eydís og Kári  eru send á Silungapoll vegna heimiliserfiðleika og fátæktar. Börnin trúa því statt og stöðugt að dvölin verði stutt, en biðin veldur þeim síendurteknum vonbrigðum. Dagarnir líða, en Eydís með sinn sterka lífsvilja og lífsgleði yfirstígur hverja hindrunina eftir aðra með ráðsnilld og dugnaði og umhyggju fyrir Kára bróður sínum.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica