Kvikmyndamiðstöð íslands

ERLENDIR SAMSTARFSAÐILAR

Eurimages lógó

EURIMAGES

EURIMAGES er sjóður sem starfar á vegum Evrópuráðsins og veitir styrki til samframleiðslu evrópskra kvikmynda og heimildamynda í fullri lengd. Ísland hefur verið þátttakandi í sjóðnum síðan 1992 og hafa fjölmargar íslenskar kvikmyndir hlotið styrki úr sjóðnum. Umsóknarferlið er flókið en hægt er að nálgast allt að 10-12% af fjármögnun þaðan. Fulltrúi Íslands í stjórn EURIMAGES er Sigríður Margrét Vigfúsdóttir.

Vefur EURIMAGES: http://www.coe.int

nordic_logo

NORRÆNI KVIKMYNDA- OG SJÓNVARPSSJÓÐURINN

Tilgangur Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins er að efla framleiðslu norræns kvikmynda og sjónvarpsefnis, með því að taka þátt í lokafjármögnun bíómynda, sjónvarpsmynda og þáttaraða, stuttmynda og skapandi heimildamynda. Aðilar að sjóðnum eru norrænu kvikmyndastofnanirnar og sjónvarpsstöðvar í almanna og einkaeigu. Á Íslandi eru Kvikmyndamiðstöð Íslands, RÚV og Stöð 2 aðilar að sjóðnum. Hægt er að lesa reglurnar um NFTF á íslensku á heimasíðu sjóðsins.

Vefur NFTF: http://www.nordiskfilmogtvfond.com/

filmcontacktnord

FILMKONTAKT NORD

Filmkontakt Nord býður uppá margskonar þjónustu og atburði sem miða að því að örva og efla norræna og alþjóðlega framleiðslu á sviði stutt- og heimildamynda og samvinnu milli dreifingaraðila. Má þar nefna fréttaþjónustu á netinu, aðgang að safni stutt- og heimildarmynda ásamt ítarlegum gagnabanka um þær og norræna kvikmyndagerðarmenn. Filmkontakt Nord kynnir norrænar stutt- og heimildamyndir á helstu kvikmyndahátíðum og mörkuðum, auk þess að standa fyrir ráðstefnum, námskeiðum og ýmiskonar viðburðum á þeim. Árlega heldur Filmkontakt Nord kvikmyndahátíðina Nordisk Panorama og ráðstefnuna Nordisk Forum, hátíðin er haldin til skiptis í fimm löndum, Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.

Vefur FkN: www.filmkontakt.dk/

efp

EUROPEAN FILM PROMOTION (EFP)

European Film Promotion (EFP) var stofnað 1997 og leggur áherslu á að kynna og markaðssetja evrópskar kvikmyndir og listamenn um heim allan í samvinnu við kvikmyndastofnanir þeirra 23 landa sem standa að stofnuninni. Markmið EFP eru þríþætt: Að auka sýnileika evrópskra kvikmynda á alþjóðlegum lykilhátíðum og mörkuðum með því að standa fyrir athyglisverðum viðburðum fyrir fjölmiðla, iðnaðinn og almenning; að skapa evrópskum kvikmyndagerðarmönnum sem greiðastan aðgang að völdum hátíðum og mörkuðum á alþjóðlega vísu. Hluti af verkefnum EFP er Shooting Star kynningarátakið fyrir upprennandi leikara á Berlinale kvikmyndahátíðinni og Producer on the Move kynningin á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir efnilega framleiðendur.

Vefur EFP: www.efp-online.com/

Logo-Media-only

MEDIA

MEDIA er skammstöfun á "Measures to Encourage the Development of the European Industry of the Audiovisual Production" sem útleggst á íslensku, "Átak til eflingar evrópskum kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunariðnaði". Áætlunin er á vegum Evrópusambandsins. EFTA ríkin Ísland, Noregur og Lichtenstein eiga aðild að áætluninni fyrir tilstilli EES samningsins um hið evrópska efnahagssvæði.

Vefur MEDIA: http://www.centrum.is/mediadesk/gluggar.htm

scandinavianfilms

SCANDINAVIAN FILMS

Scandinavian Films eru samtök opinberra kvikmyndastofnanna á Norðurlöndunum. Þau voru mynduð 1977-1978 með það helsta markmið í huga að kynna í sameiningu norrænar kvikmyndir í öðrum löndum með sameiginlegu markaðsátaki á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum og kaupstefnum eins og á Berlinale,  í Cannes og á fleiri hátíðum. Samtökin hafa í gegnum tíðina einnig haldið námskeið, kvikmyndaverðlaun og gefið út bækur. Íslenski kvikmyndasjóðurinn gerðist aðili að samtökunum árið 1983.  

Vefur Scandinavian Films: www.http://www.scandinavian-films.org/

efa

EUROPEAN FILM ACADEMY - EVRÓPSKA KVIKMYNDAAKADEMÍAN

Evrópska kvikmyndaakademían var stofnuð að frumkvæði kvikmyndagerðarmanna í tengslum við úthlutun fyrstu Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í nóvember 1988. Tilgangurinn er margvíslegur en miðar fyrst og fremst að því að örva skilning á evrópskri kvikmyndagerð, óháð landamærum, stjórnmálum, fjárhag, menntun og í listrænu tilliti. Starfið fer einkum fram með ráðstefnuhaldi og ýmiskonar námskeiðum og hugmyndasmiðjum.

Vefur EFA: www.europeanfilmacademy.org

EDN

EUROPEAN DOCUMENTARY NETWORK (EDN)

EDN er faglegur vettvangur allra þeirra sem starfa við gerð heimildamynda fyrir kvikmyndahús og sjónvarp í Evrópu. EDN hóf starfsemi árið 1996 sem samtök kvikmyndagerðarmanna, framleiðenda, framleiðslufyrirtækja, dreifingaraðila, hagsmunafélaga, kvikmyndastofnana, háskóla, kvikmyndahátíða, sjónvarpsstöðva og annarra sem koma að kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinum. EDN leitast meðal annars við að styðja samframleiðslumöguleika og efla samvinnu milli aðila í Evrópu. Samtökin veita meðlimum sínum verkefnaráðgjöf og standa fyrir námskeiðum og ráðstefnum, auk þess að gefa út EDN TV Guide og DOX Magazine.

Vefur EDN: www.edn.dk


Þetta vefsvæði byggir á Eplica