Um KMÍ
  • 1. september

Berlinale Talents auglýsir Talent Press opið til umsókna

1. september

Ungir kvikmyndagagnrýnendur og blaðamenn geta nú sótt um að taka þátt á Talent Press sem er á vegum Berlinale Talents, Goeethe-Institut go FIPRESCI. Þátttakendur á Talent Press fá að skrifa fréttir um kvikmyndirnar sem verða sýndar á alþjóðlegu kvikmyndahátíði í Berlín, Berlinale og fer fram dagana 11. – 21. febrúar 2021. Jafnframt fá þátttakendur tækifæri til þess að skrifa um Berlinale Talents sem fer fram samhliða hátíðinni. Umsóknarfrestur rennur út 1. september kl. 10:00 á íslenskum tíma.

Allar nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublaði má finna á heimasíðu Berlinale Talents.