Um KMÍ
  • 1. júní, Kvikmyndamiðstöð Íslands

Cinekid Script LAB óskar eftir umsóknum

1. júní

Cinekid barna kvikmyndahátíðin sem fer fram í Amsterdam dagana 26.-26. október óskar eftir umsóknum. 

Opið er fyrir umsóknir fyrir verkefni í þróun fyrir Script LAB handritavinnustofuna. 
Um er að ræða 6 mánaða vinnustofu sem fer fram meðan á Cinekid stendur í október og einnig í Berlín þegar að Berlinale kvikmyndahátíðin fer fram í febrúar. 

Aðstoð og ráðgjöf fagfólks sem heldur utan um vinnustofuna stendur þátttakendum til boða meðan á vinnustofunni stendur. 

Nánari upplýsingar um vinnustofuna og hvernig sækja megi um má finna hér

Cinekid Script LAB er styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands.