dok.incubator óskar eftir umsóknum
30. janúar
Um er að ræða sex mánaða langa vinnusmiðju fyrir klippara, leikstjóra og framleiðendur með heimildamynd sem er á „rough-cut“ stigi.
Myndirnar verða síðan kynntar fyrir lykilfólki í faginu og sýndar á Nordisk Panorama. Vinnusmiðjan leggur sérstaka áherslu á að aðstoða kvikmyndagerðarmenn við að klára heimildamynd sína svo hún verði tilbúin fyrir sýningar haustið 2019. Í kringum 25 alþjóðlegir leiðbeinendur munu aðstoða kvikmyndagerðarmenn á námskeiðinu við að klára myndina, koma henni út og útbúa kynningaráætlun.
- Fyrsti hlutinn fer fram í lok apríl og byrjun maí í Slóvakíu þar sem heimildamyndin og klippið er skoðað.
- Annar hlutinn fer fram þann 24. – 29. júní í Tékklandi þar sem lokahönd er sett á klippið.
- Þriðji og síðasti hlutinn fer fram dagana 16. – 23. september í Malmö, Svíþjóð þar sem áhersla er lögð á að læsa klippi.
Frekari upplýsingar um dok.incubator vinnusmiðjuna má finna hér .