Les Arcs Coproduction Village óskar eftir umsóknum
20. september
Les Arcs European Film Festival kvikmyndahátíðin fer fram á Bour-Saint Maurice skíðastaðnum í Frakklandi frá 15. – 22. desember. Samhliða hátíðinni fer fram þriggja daga samframleiðslumarkaðurinn Coproduction Village þar sem 20 verkefni í þróun verða kynnt framleiðendum, söluaðilum, dreifingaraðilum og öðrum fjármögnunaraðilum. Umsóknarfrestur rennur út 13. september.
Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum má nálgast á heimasíðu Les Arcs hátíðarinnar.