MIA samframleiðslumarkaðurinn óskar eftir umsóknum
29. júlí
MIA|Cinema samframleiðslumarkaðurinn sem fer fram í Róm dagana 19.-21. október óskar eftir umsóknum.
Markaðurinn er hugsaður sem vettvangur fyrir verkefni í þróun til að finna samframleiðslu og fjármögnunaraðila.
Eins er hluti af markaðnum 20.000 evru Eurimages samframleiðslu verðlaunin fyrir verkefni í þróun ásamt ARTE International Prize uppá 6.000 evrur, einnig fyrir verkefni í þróun.
Umsóknarfrestur er til 29. júlí n.k.
Nánari upplýsingar um markaðinn ásamt upplýsingum um hvernig skuli sækja um má finna hér.