Um KMÍ
  • 16. október, Kvikmyndamiðstöð Íslands

MIDPOINT óskar eftir umsóknum fyrir MIDPOINT Feature Launch

16. október

MIDPOINT óskar eftir umsóknum fyrir MIDPOINT Feature Launch. Um er að ræða tvær vinnustofur fyrir þróun á fyrstu eða annarri kvikmynd leikstjóra, handritshöfunda eða framleiðenda. Umsóknarfrestur rennur út 16. október 2017.

Fyrri vinnustofan mun fara fram á Ítalíu í samvinnu við Trieste kvikmyndahátíðina og sú síðari mun fara fram í Serbíu. Einnig munu fara fram kynningar á verkefnunum í Tékklandi í samvinnu við Karlovy Vary kvikmyndahátíðina og eftirfylgnis viðburður á Ítalíu í samvinnu við Trieste kvikmyndahátíðina. Samtals munu því allir viðburðirnir spanna um ár.

Allar nánari upplýsingar um MIDPOINT Feature Launch er að finna á heimasíðu MIDPOINT.