Um KMÍ
  • 25. apríl, Kvikmyndamiðstöð Íslands

Sunny Side of the Doc óskar eftir umsóknum

25. apríl

Heimildamyndahátíðin Sunny Side of the Doc óskar eftir umsóknum. Hátíðin fer fram í La Rochelle í Frakklandi frá 25. – 28. júní. Umsóknarfrestur rennur út 25. apríl.

Sunny Side of the Doc hátíðin er margþættur vettvangur fyrir heimildamyndagerðamenn þar sem hægt er að sækja um eftir því á hvaða stigi verkefni umsækjanda er. Þannig er hægt að senda inn verkefni sem eru í þróun og verkefni sem eru þegar í framleiðslu. Tekið er við öllum tegundum heimildaverkefna.

Nánari upplýsingar um hátíðina má nálgast á heimasíðu Sunny Side of the Doc. Umsóknareyðublað fyrir verkefni sem eru í þróun og verkefni sem eru þegar í framleiðslu má nálgast hér