Um KMÍ
  • 1. júní, Kvikmyndamiðstöð Íslands

TIFF Filmmaker Lab óskar eftir umsóknum

1. júní

TIFF Filmmaker Lab er vinnustofa sem haldin er ár hvert samhliða Toronto Film Festival hátíðinni í Kanada. Vinnustofan leggur sérstaka áherslu á að gefa kvikmyndagerðarfólki tækifæri til þróa skapandi þátt kvikmyndagerðar.

Ár hvert eru 10 kanadískir og 10 alþjóðlegir umsækjendur valdir til þátttöku úr stórumhópi umsækjanda til þess að taka þátt í 4 daga vinnustofu þar sem boðið er upp á leiðsögn frá virtu kvikmyndagerðarfólki til þróunar á verkefni.

Vinnustofan er ætluð kvikmyndagerðarfólki sem hefur gert að lágmarki 2 stuttmyndir og að hámarki eina kvikmynd í fullri lengd. 

Allar nánari upplýsingar um viðburðinn ásamt  því hvernig skuli sækja um má finna hér. Umsóknarfrestur fyrir alþjóðlega umsækjendur er til 1. júní.  

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Toronto, Kanada, er ein fjölsóttasta hátíð heims en um hálf milljón gesta sækir hana að jafnaði í hverjum septembermánuði og um fimm þúsund manns úr alþjóðlegum kvikmyndaheimi.