When East Meets West óskar eftir umsóknum
31. október
FVG Audiovisual Fund og Trieste kvikmyndahátíðin á Ítalíu óska eftir umsóknum fyrir When East Meets West samframleiðsluvettvanginn. When East Meets West fer fram frá 21. – 23. janúar 2018 samhliða Trieste kvikmyndahátíðinni og umsóknarfrestur rennur út 31. október.
Gjaldgeng verkefni eru kvikmyndir í fullri lengd og heimildamyndir í fullri lengd. Samtals verða 20 verkefni í þróun valin til þátttöku.
Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu When East Meets West.