Um KMÍ
  • 31. október, Kvikmyndamiðstöð Íslands

When East Meets West óskar eftir umsóknum

31. október

FVG Audiovisual Fund og Trieste kvikmyndahátíðin á Ítalíu óska eftir umsóknum fyrir When East Meets West samframleiðsluvettvanginn. When East Meets West fer fram frá 20. – 22. janúar 2019 samhliða Trieste kvikmyndahátíðinni og umsóknarfrestur rennur út 31. október.

Gjaldgeng verkefni eru kvikmyndir í fullri lengd og heimildamyndir í fullri lengd. Samtals verða 20 verkefni í þróun valin til þátttöku.

Allar nánari upplýsingar um samframleiðsluvettvanginn og hvernig skuli sækja um er að finna á heimasíðu When East Meets West.