Um KMÍ
  • 15. nóvember

CEE Animation vinnusmiðjan óskar eftir umsóknum

15. nóvember

Íslenskir framleiðendur ásamt kvikmyndagerðarmönnum gefst kostur á að sækja CEE teiknimynda vinnusmiðjuna. Hægt er að sækja um með stuttmynd, sjónvarpsþátt, teiknimynd í fullri lengd eða mynd með teiknimynda ívafi á þróunarstigi. Vinnusmiðjan er einnig með örfá sæti laus fyrir þá sem eru ekki með verkefni á þróunarstigi. Umsóknarfrestur er 15. nóvember, en vinnusmiðjan er haldin í þrennu lagi í stafrænu formi (febrúar, apríl, nóvember 2022) og einu sinni í Póllandi (ágúst 2022). 

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um umsóknarferlið og vinnusmiðjuna hér