Græn kvikmyndagerð – sjóðheitt mál
8. desember
Útlit er fyrir að eftirspurn eftir sérfræðingum og þjónustu á sviði áætlanagerðar og úrvinnslu gagna um kolefnislosun, og aðra þætti er snúa að sjálfbærni í framleiðslu og dreifingu kvikmynda, muni aukast mjög á næstu árum, og að fjöldi áhugaverðra starfa skapast á þessu sviði.
Kvikmyndamiðstöð Íslands, í samvinnu við Íslandsstofu og Rannís býður því til málþings um sjálfbæra kvikmyndagerð í Silfursal Grósku, fimmtudaginn, 8. desember n.k., kl 10-15:30. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála-, viðskipta- og menningarmála verður viðstödd og ávarpar málþingið.
Dagskrá
- 10.00 Green Film kynning
- 10.30 Umhverfisáhrif stafrænnar tækni í kvikmyndagerð
- 11.15 Dæmisaga – Hvernig ég byrjaði ég að huga að sjálfbærni á tökustað
- 12.00 Hádegisverður
- 13:00 Ávarp, Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra
- 13.10 Samtal við Mari-Jo Winkler, framleiðandi True Detective
- 14.00 Næstu skref – Sjálfbærnimarkmið og aðgerðir í íslenskri kvikmyndagerð
- 14.30 Græn kvikmyndagerð – Hvernig virkar hún á tökustað?
Hér má finna nánari upplýsingar um dagskrá (á íslensku og ensku)
Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku fyrir lok dags 5. desember, þar sem sætaframboð er takmarkað. Hægt er að velja um skráningu fyrir allan daginn eða frá kl. 13.00.
Hér má skrá sig á málþingið.