Námskeið í persónusköpun fyrir kvikmyndir og sjónvarp
22.-23. október
Kvikmyndamiðstöð Íslands stendur fyrir námskeiði í persónusköpun fyrir kvikmyndir og sjónvarp með Stephen Cleary, sem haldið verður dagana 22.-23. október. Stephen Cleary er handritsráðgjafi sem býr yfir meira en 30 ára reynslu af kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu og hefur komið að þróun fleiri en 60 kvikmynda.
Námskeiðið fer fram í Bíó Paradís frá klukkan 9-16.
Þátttökugjald er 15.000 kr. en innifalið eru öll námskeiðsgögn ásamt léttum hádegisverði báða dagana.
Þátttökuskilyrði:
- Handritshöfundar sem hafa fengið handritsstyrk eða fengið verk eftir sig sýnd í kvikmyndahúsum, sjónvarpi eða á kvikmyndahátíð, sem og nemendur í Kvikmyndadeild Listaháskóla Íslands og nemendur Kvikmyndaskóla Íslands, geta sótt um.
- Leikstjórar og framleiðendur sem hafa fengið verk sem þeir eru skráðir fyrir sýnd í kvikmyndahúsum, sjónvarpi eða á kvikmyndahátíð, geta sótt um.
Áhugasömum er bent á að senda umsóknir á póstfangið umsoknir@kvikmyndamidstod.is ásamt upplýsingum um heiti kvikmyndaverka sem uppfylla ofangreind þátttökuskilyrði, ártal, sýningarvettvang og starfsheiti.
Umsóknarfrestur er til og með 13. október.
Nánari upplýsingar um námskeiðið eru í meðfylgjandi skjali (PDF).
Nánari upplýsingar um Stephen Cleary er hægt að finna á síðunni: https://www.stephencleary.org/