Series Mania Forum óskar eftir umsóknum fyrir Writers Campus 2022
20. desember
Series Mania Forum, sem er hluti af Series Mania sjónvarpsþáttahátíðinni, óskar eftir umsóknum fyrir Writers Campus 2022. Umsækjendum býðst tækifæri til að taka þátt í vikuþjálfun í handritsskrifum. Lagt er áherslu á þróun sjónvarpsþáttaverkefna undir handleiðslu fagaðila.
Þjálfun þátttakenda fer fram frá 17. til 24. mars 2022 nálægt Lille í Frakklandi og umsóknarfrestur er til 20. desember 2021.
Allar nánari upplýsingar má finna hér.