HANDRITSSTYRKIR FYRIR LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI
Handritsstyrki fyrir leikið sjónvarpsefnis má veita til handritshöfundar, leikstjóra sem vinnur að eigin handriti, framleiðanda eða teymis áðurnefndra. Ef um teymi er að ræða fær höfundur 80% styrkupphæðar og framleiðandi 20%. Handritsstyrk má einnig veita til kaupa á höfundarrétti verks, sem fyrirhugað er að skrifa handrit eftir, en slíkir styrkir skulu ávallt greiddir til framleiðanda.
Veiting handritsstyrks er ekki vilyrði fyrir frekari styrkveitingu.
Handritsstyrkir vegna leikins sjónvarpsefnis eru veittir í allt að þremur hlutum. Sækja þarf sérstaklega um hvern hluta. Upphæð styrkja ræðst m.a. af lengd og umfangi verkefna.
1. hluti allt að 400 þús. kr.
Framlag til að skrifa ítarlegan söguþráð að fyrsta þætti, einnar blaðsíðu söguþráð fyrir hvern þátt annan auk greinargerðar um verkið.
Umsóknareyðublað vegna 1. hluta handritsstyrks má nálgast hér.
II. hluti allt að 800 þús. kr.
Framlag til að skrifa handrit að fyrsta þætti og ítarlegan söguþráð, ein til þrjár blaðsíður, fyrir hvern þátt annan.
Umsóknareyðublað vegna 2. hluta handritsstyrks má nálgast hér.
III. hluti allt að 600 þús. kr.
Framlag til að skrifa fullbúið handrit að öllum þáttum þáttaraðar.
Umsóknareyðublað vegna 3. hluta handritsstyrks má nálgast hér.

