Hátíðir og verðlaun

Íslenskar kvikmyndir á hátíðum 2023 – alþjóðleg verðlaun

Íslenskar kvikmyndir hafa unnið til fjölmargra verðlauna á alþjóðlegum vettvangi. Hér að neðan er að finna samantekt á verðlaunum fyrir árið 2023.

Allar ábendingar vegna skráningar um verðlaun eru vel þegnar og óskast sendar á info@kvikmyndamidstod.is

Leiknar kvikmyndir:

Á ferð með mömmu (leikstjóri: Hilmar Oddsson)

Þröstur Leó Gunnarsson hlaut  verðlaun sem besti leikarinn á BIF&ST, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Bari á Ítalíu.

Sumarljós og svo kemur nóttin (leikstjóri: Elfar Aðalsteins)

Vann til verðlauna sem besta norræna myndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Santa Barbara í Kaliforníu.

Svar við bréfi Helgu (leikstjóri: Ása Helga Hjörleifsdóttir)

Besta myndin, besta kvikmyndataka, besta klipping og besta tónlist á Montreal International Film Festival.

Volaða land (leikstjóri: Hlynur Pálmason)

Nina Grønlund hlaut Robert-verðlaun dönsku kvikmyndaakademíunnar fyrir búningahönnun.

Ingvar E. Sigurðsson, Elliot Crosset Hove og Maria von Hausswolff hlutu Bodil-verðlaunin, sem samtök danskra gagnrýnenda veita, fyrir fyrir besta leik í aðalhlutverki, aukahlutverki og kvikmyndatöku.

Nina Grønlund hlaut Robert-verðlaun dönsku kvikmyndaakademíunnar fyrir búningahönnun.

Ingvar E. Sigurðsson, Elliot Crosset Hove og Maria von Hausswolff hlutu Bodil-verðlaunin, sem samtök danskra gagnrýnenda veita, fyrir fyrir besta leik í aðalhlutverki, aukahlutverki og kvikmyndatöku.

Besta myndin og besti leikari (Elliot Crosset Hove) á Almeria Western Film Festival.

Heimildamyndir:

Atomy (leikstjóri: Logi Hilmarsson)

Aðalverðlaun á Bosifest.

Heimaleikurinn (leikstjóri: Smári Gunnarsson)

Áhorfendaverðlaun á Nordisk Panorama.

Exxtinction Emergency (leikstjórar: Sigurjón Sighvatsson, Scott Hardie)

Besta leikstjórn og klipping á Nature Without Borders.
Best Environmental Feature á Montreal Indipendent Film Festival.

Stuttmyndir:

Að elta fugla (leikstjóri: Una Lorenzen)

Hlaut Globalex-verðlaunin á Prends ça court.

Valin besta kvikaða stuttmyndin á Rendezvous Quebec Cinema.

Hlaut verðlaun sem besta teiknaða stuttmyndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Shanghai í Kína.

Fár (leikstjóri: Gunnur Martinsdóttir Schlüter)

Hlaut sérstaka viðurkenningu í flokki stuttmynda á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Hreiður (leikstjóri: Hlynur Pálmason)

Hlaut Robert-verðlaun dönsku kvikmyndaakademíunnar sem besta stuttmyndin.

Dómnefndarverðlaun á Un Festival C'est Trop Court.