TILNEFNINGAR TIL EDDUVERÐLAUNA 2012
IN A HEARTBEAT VALIN BESTA STUTTMYNDIN Á BARNAKVIKMYNDAHÁTÍÐ Á INDLANDI
Íslenska stuttmyndin, In a Heartbeat í leikstjórn Karolina Lewicka, var valin besta stuttmyndin á barnakvikmyndahátíðinni, Indian Children‘s Film Festival, sem haldin var í 7. sinn í Bengaluru og fleiri borgum í Karnataka fylki á Indlandi dagana 9. til 14. janúar 2012.
TÓNLISTARMYNDBÖND AFTUR VERÐLAUNUÐ Á ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNUNUM
STJÖRNUSKIN Á ALÞJÓÐLEGU KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í BERLÍN
ANDLIT NORÐURSINS OG ROÐLAUST OG BEINLAUST Í ÞESSALÓNÍKU
FIMM ÍSLENSKAR MYNDIR VALDAR Í KEPPNI Á MINIMALEN STUTTMYNDAHÁTÍÐINNI
Fimm íslenskar myndir voru valdar til að taka þátt í samkeppni, NIFA, um bestu, nýju norrænu stuttmyndina á Minimalen stuttmyndahátíðinni, Minimalen Short Film Festival, sem haldin verður í Þrándheimi í Noregi dagana 14. til 18. mars 2012.
VINNUSTOFUR UM LEIKNA EVRÓPSKA SJÓNVARPSÞÆTTI
Stofnun Erich Pommer í Þýskalandi, í samvinnu við MediaXchange í Bretlandi, stendur fyrir vinnustofum um nýjungar í gerð evrópskra sjónvarpsþátta.
ÞRJÁR ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR TAKA ÞÁTT Í ALÞJÓÐLEGU KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í GAUTABORG
Drama, gaman, hasar og ævintýri ráða í bland ríkjum í þremur íslenskum kvikmyndum – Eldfjalli, Á annan veg og Hetjum Valhallar – Þór, sem taka þátt í GIFF, Göteborg International Film Festival, í Gautaborg, Svíþjóð dagana 27. janúar til 6. febrúar.
TVÖ ÍSLENSK VERKEFNI VALIN Á WEMW
NORDISK PANORAMA KALLAR EFTIR UMSÓKNUM
AMMA LO-FI Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í ROTTERDAM OG MoMA Í NEW YORK
Heimildamyndin Amma Lo-Fi - Kjallaraspólur Sigríðar Níelsdóttur verður sýnd í flokknum Bright Future á kvikmyndahátíðinni International Film Festival Rotterdam 2012, sem haldin dagana 25. janúar til 5. febrúar n.k. Skömmu síðar heldur Amma Lo-Fi vestur um á tveggja vikna heimildamyndahátíð í hinu virta listasafni MoMA í New York dagana 16. til 28. febrúar n.k.
Lesa meiraSVARTUR Á LEIK TILNEFND TIL TIGER VERÐLAUNA Á IFFR
KVIKMYNDAMIÐSTÖÐ ÍSLANDS AUGLÝSIR EFTIR FRAMLEIÐSLU- OG FJÁRMÁLASTJÓRA
THE GOOD PITCH EUROPE 2012 KALLAR EFTIR UMSÓKNUM
The Good Pitch Europe 2012 kallar eftir umsóknum til þátttöku í fjármögnunarmessu sem haldin verður í London þann 25. júní 2012. Viðburðurinn er ætlaður kvikmyndagerðarmönnum sem vinna að verkefnum tengdum umhverfis- og/eða félagsmálum. Undanfari messunnar eru tvær vinnustofur. Umsóknarfrestur rennur út kl. 16:00 þann 1. febrúar 2012.
SAMKEPPNI UM OPNUNARATRIÐI VETRARHÁTÍÐAR Í REYKJAVÍK
SAMKOMULAG UM STEFNUMÖRKUN FYRIR ÍSLENSKA KVIKMYNDAGERÐ- OG MENNINGU UNDIRRITAÐ
FUNDARBOÐ TIL KVIKMYNDAGERÐARMANNA
Boðað er til fundar með fagfélögum í kvikmyndagerð og Kvikmyndamiðstöð þriðjudaginn 13. desember kl. 16 í Bíó Paradís.
Lesa meira
REYKJAVÍK SHORTS&DOCS KALLAR EFTIR UMSÓKNUM
Stutt-og heimildamyndahátíðina Reykjavík Shorts&Docs Festival verður haldin dagana 6.-9. maí 2012. Fram til 1.janúar 2012 er ekkert gjald tekið fyrir innsendar myndir en eftir 1. janúar kostar 4000 kr að senda inn hverja kvikmynd. Hægt er að senda inn kvikmyndir á hátíðina fram til 1. mars 2012.
HILMAR GUÐJÓNSSON VALINN Í HIÐ VIRTA SHOOTING STAR
Hilmar Guðjónsson er einn 10 evrópskra leikara sem var valinn í Shooting Star, sem er sérstök kynning á ungum og efnilegum kvikmyndaleikurum sem þykja líklegir til að ná langt í sínu fagi. Hópurinn var kosinn af alþjóðlegri dómnefnd og teljast þeir sem valdir eru Shooting star vera á meðal efnilegustu kvikmyndaleikara Evrópu. Það er European Film Promotion sem stendur fyrir Shooting Star og er Kvikmyndamiðstöð Íslands aðili að þeim samtökum.
VINNUSTOFA LEIKMYNDAHÖNNUÐA Í KAUPMANNAHÖFN
Vinnustofa leikmyndahönnuða, Two Days in Copenhagen, fer fram í Kaupmannahöfn 21. – 22. janúar 2012. Sérstakir gestir vinnustofunnar verða BAFTA-verðlaunahafarnir Nathan Crowley (“Public Enemies”, “The Dark Knight”, “The Prestige”, “Insomnia”, “The Dark Knight Rises”) og Sarah Greenwood (“Sherlock Holmes 1+2”, “Hanna”, “Atonement”, “Pride & Prejudice”, “Anna Karenina”). Frekari upplýsinga má nálgast á www.scenograf.dk, með því að senda tölvupóst á another2days@gmail.com eða í gegnum síma +45 3314 3355.
Á ANNAN VEG HLÝTUR VERÐLAUN FYRIR BESTU MYND OG BESTA HANDRIT Í TÓRÍNÓ
Kvikmyndin Á annan veg eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson hlaut aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Tórínó fyrir bestu mynd um helgina. Þá var Á annan veg einnig verðlaunuð fyrir besta handrit og fékk gríðarlega góðar viðtökur á þessari virtu hátíð.
ÓRÓI VERÐLAUNUÐ Í ÞÝSKALANDI
MAMMA GÓGÓ HLÝTUR TVENN VERÐLAUN Í MADEIRA
Kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Mamma Gógó, hlaut tvenn verðlaun á Funchal kvikmyndahátíðinni sem fram fór í Madeira í Portúgal. Annars vegar fyrir bestu leikkonu (Kristbjörg Kjeld) og hins vegar Silver Funchal City Award - verðlaunin.
Lesa meiraELDFJALL SLÆR MEISTURUM VIÐ Í DENVER
Lesa meira
19 ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR Á BLACK NIGHTS FILM FESTIVAL Í EISTLANDI
19 íslenskar kvikmyndir verða sýndar á kvikmyndahátíðinni Black Nights Film Festival, sem fram fer í Tallinn í Eistlandi dagana 16. – 30. nóvember. Á annan veg eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson verður opnunarmynd Black Nights, Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson er í aðalkeppni hátíðarinnar og Friðrik Þór Friðriksson hlýtur heiðursverðlaun hátíðarinnar.
AMMA LO-FI BESTA ALÞJÓÐLEGA TÓNLISTARMYNDIN Á CPH:DOX
Amma lo-fi var valin besta alþjóðlega tónlistarmyndin á heimildamyndahátíðinni CPH:DOX, sem fram fór í Kaupmannahöfn dagana 3. – 13. nóvember. Heimildamyndin, sem frumsýnd var á hátíðinni, fjallar um tónlistarkonuna Sigríði Níelsdóttur, sem sjötug byrjaði að taka upp eigin tónlist og gaf út 59 plötur næstu sjö árin á eftir.
WHEN EAST MEETS WEST - UMSÓKNARFRESTUR FRAMLENDGUR TIL 25. NÓVEMBER
Á ANNAN VEG VERÐLAUNUÐ Í LŰBECK
Kvikmyndin Á annan veg eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson hlaut Eystrasaltsverðlaunin (Baltic Film Prize) á norrænu kvikmyndahátíðinni í Lübeck í Þýskalandi. Þetta er í 20. sinn sem verðlaunin eru veitt og hafa kvikmyndaleikstjórar á borð við Lars von Trier, Susanne Bier og Friðrik Þór Friðriksson áður veitt þeim viðtöku.
SOURCES 2 - VINNUSTOFA Í HANDRITSGERÐ
THEODÓR JÚLÍUSSON VALINN BESTI LEIKARINN Í SAO PAULO
kvikmyndahátíðinni í Sao Paulo fyrir leik sinn í Eldfjalli, kvikmynd
Rúnars Rúnarssonar. Lesa meira
FJÁRMÖGNUNARMESSAN BELOW ZERO KALLAR EFTIR UMSÓKNUM
Below ZERO er fjármögnunarmessa og vinnustofa tileinkuð heimildamyndum sem fjalla um lífið á Norðurheimskautsslóðum. Messan fer fram Tromsö í Noregi dagana 18. – 21. janúar 2012. Frestur til að sækja um þátttöku rennur út 28. nóvember 2011.
ELDFJALL VINNUR TIL VERÐLAUNA Á SPÁNI
Lesa meira
10 ÍSLENSKIR TITLAR Á NORRÆNUM KVIKMYNDADÖGUM Í LŰBECK
Norrænir kvikmyndadagar í Lübeck fara fram í 53. sinn dagana 2. – 6. nóvember. Tíu íslenskar myndir verða sýndar á hátíðinni – fimm kvikmyndir í fullri lengd, fjórar heimildamyndir og ein stuttmynd.
ELDFJALL HLÝTUR AÐALVERÐLAUNIN Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í MONTRÉAL
Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, hlaut gullna úlfinn – aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Montréal, Festival du Nouveau Cinema. Auk þess hlaut myndin sérstök gagnrýnendaverðlaun samtakanna AQCC, Association québécoise des critiques de cinéma.
WHEN EAST MEETS WEST ÓSKAR EFTIR UMSÓKNUM
SÆNSKA KVIKMYNDIN SVÍNASTÍAN HLÝTUR KVIKMYNDAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS
ELDFJALL HLÝTUR VERÐLAUN Í CHICAGO
SPENNANDI DAGSKRÁ Á YOU ARE IN CONTROL
NÁMSKEIÐ FYRIR UNGA KVIKMYNDAGAGNRÝNENDUR Í ROTTERDAM
SUMARLANDIÐ FÆR VERÐLAUN FYRIR BESTA HANDRITIIÐ Í TEXAS
Sumarlandið hlaut verðlaunum fyrir besta handritið á Fantastic Fest kvikmyndahátíðinni í Texas. Ólafur Egilsson og Grímur Hákonarson skrifuðu handritið sem vann í flokknum Fantastic Features.
Lesa meiraSOURCES 2 PROJECTS AND PROCESS
BERLINALE CO-PRODUCTION MARKET: ÓSKAR EFTIR UMSÓKNUM
Hægt er að senda inn verkefni í leit að alþjóðlegum styrktar- og samstarfsaðilum fram til 27. október. Markaðurinn er að leita að efnilegum verkefnum með fjáröflun á milli 2-10 milljón evra. Um það bil 30 verkefni verða síðan valin til þátttöku.
Lesa meiraDOCXCHANGE FORUM FRAMLENGIR UMSÓKNARFRESTINN TIL 9.SEPTEMBER
Ekki missa af góðu tækifæri til að sjá hvað er að gerast í gagnvirkri heimildamyndagerð. DocXchange Forum verður haldið þann 28. september næstkomandi. Nánari upplýsingar eru að finna hér.
RÁÐSTEFNA UM SKAPANDI GREINAR OG TÆKIFÆRIN Í NETHEIMUM
Alþjóðlega ráðstefnan You Are In Control verður haldin í fimmta sinn dagana 10. – 12. október í Hörpu.
Af gefnu tilefni er sérstakur afsláttur veittur fyrir einyrkja/einstaklinga sem vinna við skapandi greinar og fá þeir miða á ráðstefnuna á hálfvirði og borga þar með 10.000 krónur fyrir miðann. Til þess að nýta þetta tilboð er hægt að hafa samband við Bryndísi hjá You Are In Control og þar sem þessir miðar eru í takmörkuðu upplagi og gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.
BERLINALE TALENT CAMPUS KALLAR EFTIR UMSÓKNUM FRÁ UNGUM KVIKMYNDAGAGNRÝNENDUM
Berlinale Talent Campus, Goethe Institute, og FIPRESCI (the International Federation of Film Critics) kalla eftir umsækjendum fyrir Talent press, þar sem ungum og upprennandi kvikmyndagnrýnendum er boðið að koma og taka þátt í 62. Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín 2012. Nánari upplýsingar eru að finna á www.berlinale-talentcampus.de og www.fipresci.org.
IDFA FORUM ÓSKAR EFTIR VERKEFNUM
TILMAN SCHEEL FRÁ REELPORT OG EUROPE'S FINEST Á YOU ARE IN CONTROL
KVIKMYNDIN BRIM FRAMLAG ÍSLANDS TIL NORRÆNU KVIKMYNDAVERÐLAUNANNA
Fimm áhrifaríkar en jafnframt afar ólíkar norrænar kvikmyndir keppa um hin eftirsóttu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs á þessi ári. Íslenski leikstjórinn Árni Ólafur Ásgeirsson, handritshöfundurinn Ottó Geir Borg og framleiðendurnir Þórir Sigurjónsson, Skúli Fr. Malmquist, Grímar Jónsson og Gísli Örn Garðarsson eru tilnefndir til verðlaunanna fyrir kvikmyndina BRIM og keppa við eina mynd frá hverju hinna norrænu ríkjanna: Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.
Á ANNAN VEG TIL SAN SEBASTIAN
ELDJALL SÝND Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í TORONTO
Eldfjall, fyrsta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar í fullri lengd, hefur verið valin á kvikmyndahátíðina í Toronto sem fram fer 8. – 18. september. Eldfjall hefur hlotið mjög góðar viðtökur frá því hún var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor og hlaut meðal annars verðlaun fyrir bestu leikstjórn á kvikmyndahátíðinni í Transilvaniu í júní síðast liðnum.
HEIMILDAMYNDIN GNARR VERÐLAUNUÐ Í BANDARÍKJUNUM
Heimildamyndin Gnarr eftir Gauk Úlfarsson hlaut tvenn verðlaun á kvikmyndhátíðinni Traverse City Film Festival, sem fram fór dagana 26. – 31. júlí. Gnarr var útnefnd sem besta erlenda heimildamyndin í „Founders“-verðlaunaflokknum og Gaukur Úlfarsson hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórn erlendrar heimildamyndar í flokknum „World Documentary Jury Awards“.
BERLINALE TALENT CAMPUS - OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR
Berlinale Talent Campus fer fram í 10. sinn dagana 11. – 16. febrúar 2012, samhliða kvikmyndahátíðinni í Berlín. Vinnustofan er ætluð kvikmyndagerðarmönnum sem eru stíga sín fyrstu skref í kvikmyndageiranum og hafa áhuga á að læra af virtum sérfræðingum og efla alþjóðlegt tengslanet sitt. Umsóknarfrestur um þátttöku rennur út 5. október 2011.
SJÖ ÍSLENSKAR MYNDIR VALDAR Í KEPPNI Á NORDISK PANORAMA
Tilkynnt hefur verið hvaða myndir taka þátt í keppni á Nordisk Panorama 2011, sem fram fer í Árhúsum í Danmörku dagana 23. – 28. september. Alls voru 67 myndir valdar í keppni í ár og af þeim eru sjö frá Íslandi.
VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR Í HÓPI 10 EVRÓPSKRA LEIKSTJÓRA SEM VERT ER AÐ FYLGJAST MEÐ AÐ MATI VARIETY
Valdís Óskarsdóttir er á meðal 10 evrópskra leikstjóra sem vert er að fylgjast með. Hópurinn, sem valinn var af gagnrýnendum Variety, var kynntur á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary og myndir eftir leikstjórana sýndar. Nýjasta kvikmynd Valdísar, Kóngavegur, var hluti af þeirri dagskrá.
IDFA FJÁRMÖGNUNARMESSA OG MARKAÐUR - OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR
Heimildamyndahátíðin IDFA fer fram í 24. sinn í Amsterdam dagana 16. – 27. nóvember. Í tengslum við hátíðina verður haldin fjármögnunarmessa og markaður fyrir heimildamyndir. Frestur til að sækja um þátttöku er 1. september fyrir fjármögnunarmessuna og 1. ágúst / 15. september fyrir markaðinn.
POWER TO THE PIXEL MARKAÐUR ? OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR
Pixel markaðurinn fer fram 12. – 13. október og er hluti af hinni árlegu Power to the Pixel vinnustofu „Cross-Media Forum“. Markaðurinn er haldinn í tengslum við BFI kvikmyndahátíðina í London og á honum gefst þátttakendum færi á að kynna og fjármagna verkefni sín. Umsóknarfrestur rennur út 29. júlí.
NORDISK FORUM 2011 - SKRÁNINGU LÝKUR 1. ÁGÚST 2011
FJÁRMÖGNUNARMESSA Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í TORONTO - OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR
Alþjóðleg fjármögnunarmessa fer fram dagana 10. - 12. september 2011 í tengslum við kvikmyndahátíðina í Toronto. Umsóknarfrestur rennur út 27. júlí.
SKRÁNING HAFIN Á NORDISK PANORAMA 2011
Opið er fyrir skráningu á Nordisk Panorama 2011. Hátíðin fer fram í 22. sinn í Árhúsum í Danmörku dagana 23. – 28. september 2011. Skráningin fer fram á heimasíðu Nordisk Panorama og geta áhugasamir nýtt sér sérstakt „early bird“ tilboð séu þeir fljótir til.
FJÓRAR ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR Á KARLOVY VARY
Fjórar íslenskar kvikmyndir voru valdar inn á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Karlovy Vary. Um er að ræða kvikmyndirnar Kóngaveg eftir Valdísi Óskarsdóttur í flokknum: Variety´s Ten Euro Directors to Watch, Brim eftir Árna Óla Ásgeirsson í flokknum: Horizons, Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson í flokknum: Another View og heimildamyndina Backyard eftir Árna Sveinsson í flokknum: A Musical Oddyssey.
CINETRAIN: RUSSIAN WINTER, OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR
Cinetrain: Russian Winter er Vinnustofa sem snýst um einstaka upplifun við framleiðslu á heimildamynd sem mun eiga sér stað í febrúar 2012 í lestarferð frá Murmansk til Irkutsk.
Nánari upplýsingar eru á www.cinetrain.net
UMSÓKNARFRESTUR Á TALENTCAMPODENSE RENNUR ÚT 28 JÚNÍ
TalentCampOdense eru alþjóðlegar kvikmyndabúðir fyrir unga og efnilega kvikmyndagerðarmenn. Þetta er í fjórða sinn sem þær eru haldnar á sama tíma og Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Odense.
Nánari upplýsingar eru á http://www.talentcampodense.dk
MAMMA GÓGÓ VINNUR ÁHORFENDAVERÐLAUN Í FESTROIA
Kvikmyndin Mamma Gógó í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar vann áhorfendaverðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Festroia í Portúgal á sunnudag.
VINNUSTOFA FYRIR SAMFRAMLEIÐSLU HEIMILDAMYNDA Á SAN SEBASTIAN
ELDFJALL HLÝTUR VERÐLAUN Í TRANSILVANÍU
HEIMILDAMYNDAHÁTÍÐIN SKJALDBORG HEFST Í DAG
Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, verður haldin í fimmta sinn á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina, 10. – 12. júní. Yfir 20 nýjar íslenskar heimildamyndir verða frumsýndar á hátíðinni og spennandi verkefni í vinnslu verða kynnt.
STUTTMYNDIN FREYJA GERIR ÞAÐ GOTT Í BANDARÍKJUNUM
ANDLIT NORÐURSINS Í KEPPNI Á SHEFFIELD DOC/FEST
KÓNGAVEGUR OG ELDFJALL Í KEPPNI Í TRANSILVANÍU
Tvær íslenskar kvikmyndir eru í keppni á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Transilvaníu. Um er að ræða kvikmyndirnar Kóngaveg eftir Valdísi Óskarsdóttur og Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson, sem frumsýnd var á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí.
HEIMILDAMYNDAHÁTÍÐIN FESTIVAL DEI POPOLI KALLAR EFTIR UMSÓKNUM
KRISTBJÖRG KJELD VALIN BESTA LEIKKONAN Á POLAR LIGHTS KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI
Kristbjörg Kjeld hlautverðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki á kvikmyndahátíð í Rússlandi fyrir hlutverk sitt í Mömmu Gógó í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar.
SKJALDBORG Í FIMMTA SINN
Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, verður haldin í fimmta sinn á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina, 10. – 12. júní. Yfir 20 nýjar íslenskar heimildamyndir verða frumsýndar á hátíðinni og spennandi verkefni í vinnslu verða kynnt.
UMSÓKNARFRESTUR Á NORDISK FORUM RENNUR ÚT 10. JÚNÍ
ICELANDIC CINEMA ONLINE - NÝR ÍSLENSKUR KVIKMYNDAVEFUR
PRODUCERS ON THE MOVE Í CANNES
Vinnustofan Producers on the Move fer fram dagana 14. – 17. maí í tengslum við kvikmyndahátíðina í Cannes. 25 framleiðendur frá jafnmörgum löndum í Evrópu voru valdir af European Film Promotion til að taka þátt og er Hlín Jóhannesdóttir frá Zik Zak á meðal þeirra.
Lesa meiraELDFJALL FRUMSÝND Í CANNES Á FÖSTUDAGINN
Fyrsta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar í fullri lengd verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes núna á föstudaginn. Klukkan 14:00 verður sérstök sýning fyrir blaðamenn og mun Rúnar Rúnarsson sitja fyrir svörum að sýningu lokinni. Myndin verður síðan sýnd aftur klukkan 22:00 og þá sem hluti af hinu virta Quinzaine des Réalisateurs (Directors‘ Fortnight) flokki.
ÓRÓI VERÐLAUNUÐ Á KRISTIANSAND KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI
Kvikmyndin Órói eftir Baldvin Z hlaut Don Quixote verðlaunin á kvikmyndahátðinni í Kristiansand, sem fram fór dagana 3. – 7. maí í Noregi. Don Quixote verðlaunin eru veitt fyrir bestu kvikmyndina í flokknum „Ungt fólk“ (Youth section).
NORDISK FORUM AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM - UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 10. JÚNÍ 2011
KÓNGAVEGUR OG ELDFJALL Í KEPPNI Í TRANSILVANÍU
Tvær íslenskar kvikmyndir hafa verið valdar í keppni á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Transilvaníu. Um er að ræða kvikmyndirnar Kóngaveg eftir Valdísi Óskarsdóttur og Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson, sem verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes núna í maí.
SAMTÖK SKAPANDI GREINA STOFNUÐ
Samtök skapandi greina, SSG, voru formlega stofnuð þriðjudaginn 3. maí. Að samtökunum standa allar kynningarmiðstöðvar lista og skapandi greina á Íslandi og samtök í hverri grein. Þau samtök, sem eru bakhjarlar kynningarmiðstöðva, mynda breiðustu fylkingu fagfólks í skapandi greinum í landinu.
NORDISK PANORAMA 2011 - UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 15. MAÍ
SKÝRSLA UM KORTLAGNINGU Á HAGRÆNUM ÁHRIFUM SKAPANDI GREINA KOMIN ÚT
VINNUSTOFA FYRIR UNGA HEIMILDAMYNDALEIKSTJÓRA OG FRAMLEIÐENDUR - UMSÓKNARFRESTUR 25. MAÍ
Twelve for the Future er vinnustofa fyrir unga, norræna framleiðendur og leikstjóra sem hyggja á erlenda samframleiðslu heimildamynda. Á vinnustofunni verður einblínt á þróun alþjóðlegra samframleiðsluverkefna, eflingu tengslanets og að koma á sambandi á milli kvikmyndagerðarmanna og fjárfesta.
Lesa meiraTÓMAS LEMARQUIS Á CANNES KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI
Tómas Lemarquis fer með stórt hlutverk í indversku kvikmyndinni Chatrak sem valin var á Quinzaine des Réalisateurs (Directors‘ Fortnight) á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Tómas er ekki eini fulltrúi Íslands í þessum virta flokki, en eins og tilkynnt var á dögunum þá verður kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Eldjall, einnig sýnd á Quinzaine des Réalisateurs. Kvikmyndahátíðin í Cannes fer fram 11. - 21. maí.
SKAPANDI GREINAR HAFA ÓTVÍRÆTT HAGRÆNT GILDI - MÁLSTOFA 3. MAÍ
Skýrsla um kortlagningu hagrænna áhrifa skapandi greina verður kynnt á málstofu í Háskóla Íslands þriðjudaginn 3. maí kl. 12:00. Höfundar skýrslunnar eru Margrét Sigrún Sigurðardóttir lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Tómas Young rannsakandi.
Lesa meira
KVIKMYNDIN ELDFJALL EFTIR RÚNAR RÚNARSSON VALIN Á CANNES KVIKMYNDAHÁTÍÐINA
Eldfjall, fyrsta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar í fullri lengd, verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes 13. maí. Eldfjall verður sýnd í flokknum Quinzaine des Réalisateurs (Directors' Fortnight) og er í keppni um Camera d´Or verðlaunin, en þau eru veitt fyrir bestu fyrstu kvikmynd leikstjóra.
GNARR Á TRIBECA OG HOT DOCS, ÓRÓI Á SPROCKETS OG SUMARLANDIÐ Á CPH PIX
SKJALDBORG HEIMILDAMYNDAHÁTÍÐ - UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 10. MAÍ
Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, verður haldin í fimmta sinn á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina, 10. – 12. júní. Umsóknarfrestur til að senda inn mynd á hátíðina er til 10. maí.
ÁSKORUN TIL KVIKMYNDAGERÐARMANNA - GAGNAGRUNNUR UM ÍSLENSKAR MYNDIR
ÁHERSLA Á ÍSLAND OG NOREG Á STUTTMYNDAHÁTÍÐ Í RÓM - UMSÓKNARFRESTUR 23. MAÍ
Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Cortiandcigarettes í Róm hefur í ár sérstakan flokk kallaðan “Scandinavian short” sem leggur áherslu á stuttmyndir frá löndum norður Evrópu og sér í lagi myndir frá Íslandi og Noregi.
VINNUSTOFA UM STAFRÆNAR DREIFINGARLEIÐIR
Dagana 5. – 9. júní fer fram vinnustofa í Árhúsum í Danmörku um dreifingu myndefnis í stafrænum miðlum. Vinnustofan miðar að því að auka þekkingu framleiðenda og dreifingaraðila á stafrænni dreifingu og kynna þá möguleika sem í henni felast. Það er engin dagsetning á umsóknarfrestinum, heldur miðast hann við sætaframboð og lýkur þegar tilteknum fjölda er náð.
INSIDE PICTURES VINNUSTOFA - UMSÓKNARFRESTUR 4. APRÍL
Umsóknarfrestur til að sækja um þátttöku á vinnustofunni Inside Pictures rennur út þann 4. apríl. Þetta er í fyrsta skipti sem aðilar utan Bretlands geta sótt um þátttöku. Inside Pictures miðar að því að efla tengslanet framleiðenda og stjórnenda og auka skilning þeirra á hinu alþjóðlega umhverfi sem kvikmyndaiðnaðurinn þrífst í.
Lesa meiraFRIÐRIK ÞÓR HLÝTUR HEIÐURSVERÐLAUN Í TÉKKLANDI
FRAMLEIÐANDINN CHRISTINE VACHON Á ÍSLANDI- FYRIRLESTUR, KVIKMYNDIR, SPURT OG SVARAÐ
NORRÆN VINNUSTOFA FYRIR UPPRENNANDI KVIKMYNDAGERÐARMENN
Kvikmyndastofnanir Norðurlandanna, Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn og Evrópski kvikmyndaskólinn (European Film College) standa fyrir þriggja daga vinnustofu fyrir upprennandi kvikmyndagerðarmenn á Norðurlöndunum. Vinnustofan fer fram í Danmörku dagana 8. – 11. júní 2011. Umsóknarfrestur rennur út þann 7. apríl 2011.
OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR Á NUFF
Búið er að opna fyrir umsóknir á Nordic Youth Film Competion sem fram fer á Nordic Youth Film Festival (NUFF) í Noregi dagana 11. – 19. júní 2011. Umsóknarfrestur rennur út þann 1. apríl 2011.
Lesa meiraSTUTTMYNDIN CLEAN VERÐLAUNUÐ Á NORTHERN WAVE
VINNUSTOFA Á VEGUM TRANS ATLANTIC PARTNERS - UMSÓKNARFRESTUR 22. MARS
Umóknarfrestur um þátttöku á vinnustofu á vegum Trans Atlantic Partners rennur út þann 22. mars. Vinnustofan miðar að þjálfun evrópska og norður-amerískra framleiðenda og eflingu tengslanets þeirra á milli. Vinnustofan mun fara fram í þremur hlutum í Berlín, Halifax og New York.
Lesa meiraDOCXCHANGE Á HOT DOCS OG NORDISK PANORAMA: UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 4. MARS
PIXEL LAB 2011: OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR
Vinnustofa á vegum Power to the Pixel, Pixel Lab, mun fara fram í annað sinn dagana 26. júní til 2. júlí í Potsdam í Þýskalandi. Markmið Pixel Lab er að aðstoða fagfólk í kvikmynda– og fjölmiðlageiranum í að aðlagast og finna tækifæri í hinu síbreytilega, stafræna starfsumhverfi. Í ár verður lögð sérstök áhersla á gerð efnis sem hægt er að dreifa í gegnum mismunandi miðla. Umóknarfrestur rennur út 1. apríl 2011.

