Um KMÍ
Á döfinni

15.4.2024

Verðlaunahafar Sprettfisks tilkynntir – Gunnur Schlüter hlýtur Evu Maríu Daniels verðlaunin

Kvikmyndahátíðinni Stockfish lauk um helgina með athöfn þar sem verðlaunahafar Sprettfisks, stuttmyndakeppni hátíðarinnar, voru tilkynntir. Veitt voru verðlaun í fjórum flokkum, auk nýrra verðlauna sem heiðra minningu Evu Maríu Daniels kvikmyndagerðarkonu.

Tuttugu myndir voru tilnefndar, en markmið keppninnar er að vekja athygli á upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja það til góðra verka með verðlaunum sem geta lagt grunninn að næsta verkefni.

RÚV og KUKL tækjaleiga leggja til verðlaunin. Verðlaunamyndirnar verða sýndar á RÚV og verða aðgengilegar í spilara RÚV. 

Besta stutta heimildamyndin var Samkenndarskápar eftir Rakel Jónsdóttur.

Umsögn dómnefndar:

Hverju höfum við tapað sem samfélag? Og hvernig finnum við það aftur? Hvernig endurvekjum við gildi – og styrkjum þau? Með akademískan bakgrunn og listræna nálgun að vopni varpar höfundur ljósi á hið manneskjulega í borgarsamfélaginu. Getum við endurheimt það sem við höfum týnt með því að deila reglulega mat með manneskjum sem við höfum aldrei hitt? Samkenndarskápar eftir Rakel Jónsdóttur er stutt og listræn heimildamynd sem byggir á stærri rannsókn höfundar á svokölluðum frískápum á Íslandi og menningunni í kringum þá.

Myndin gengur afar vel upp, ekki síst vegna þess hvernig form og nálgun styðja við umfjöllunarefnið og veita áhorfendum um leið rými til að leiða hugann að einu stærsta vandamáli samtímans: matarsóun.

Besta leikna stuttmyndin var Fár eftir Gunni Martinsdóttur Schlüter. Hún hlaut einnig verðlaun hátíðarinnar sem veitt eru í nafni Evu Mariu Daniels, kvikmyndagerðarkonu, í tilefni af 10 ára afmæli Stockfish.

Umsögn dómnefndar:

Sigurvegari Sprettfisks-verðlaunanna í ár sýnir bæði næmni og hugrekki í nálgun sinni og vekur upp áleitnar spurningar um siðferði, ábyrgð og samfélag. Kvikmyndataka, hljóðmynd og sterkur og látlaus leikur, koma saman í skýrri listrænni sýn sem endurspeglar kjarna verksins, sem áhorfanda er svo treyst fyrir að túlka fyrir sig. Leikstjóri nýtir sér vel knappan ramma stuttmyndaformsins og skapar bæði margrætt og skýrt verk fyrir vikið. 

Besta tilraunaverkið var Sálufélagar eftir Öldu Ægisdóttur.

Umsögn dómnefndar:

Soulmates/Sálufélagar dró okkur inn í heim sem að okkur fannst bæði frumstæður og undarlega kunnuglegur. Við vorum umvafin dásamlegu sjónarspili lita og „lífrænna“ formgerða, heilluð af verunum sem að við hittum fyrir og gáttuð á nánum samskiptum lífsformanna. Við mættum okkar eigin tilfinningum varðandi sálufélaga, bæði fornum og samtímalegu konsepti og okkur fannst skapandinn framkvæma það sem við ætlumst til af tilrauna-fólki okkar og ná að fullgera eitthvað á brún hengiflugsins. 

Besta tónlistarmyndbandið var Problems eftir Flesh Machine:

Umsögn dómnefndar: 

Tónlistarverkið valið af dómnefndinni er einstakt og grípandi. Einkenni þess eru léttleiki, húmor og þema sem áhorfandinn tengir við. Það skein skært í flokknum fyrir frumleika sinn, tón og karaktera sem eru á sama tíma áþreifanlegir og furðulegir. Tónlistarmyndband sem er einlægt í ófullkomleika sínum og tekst að vekja gleði og tilfinningar frá byrjun til enda.