Um KMÍ
Á döfinni

19.4.2024

Dagurinn sem Ísland stöðvaðist heimsfrumsýnd á Hot Docs

Heimildamyndin Dagurinn sem Ísland stöðvaðist (The Day Iceland Stood Still) verður heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni Hot Docs í Kanada 29. apríl.

Myndin segir frá kvennaverkfallinu 24. október 1975, þegar 90% íslenskra kvenna lögðu niður störf og sýndu mikilvægi sitt í íslensku atvinnulífi.

https://www.youtube.com/watch?v=E3BLwtd1Z0k

Leikstjóri er Emmy-verðlaunahafinn Pamela Hogan og er myndin gerð í samstarfi við Hrafnhildi Gunnarsdóttur framleiðanda.

Hot Docs fer fram 25. apríl til 5. maí í Toronto í Kanada og er stærsta heimildamyndahátíð Norður-Ameríku.