Um KMÍ
Á döfinni

15.4.2024

Á ferð með mömmu sigursælasta kvikmyndin á Eddunni

Kvikmyndin Á ferð með mömmu hlaut flestar Eddur á verðlaunahátíð Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, sem fram fór laugardaginn 13. apríl. 

Hátíðin í ár markaði þáttaskil þar sem hún var sú fyrsta eftir að kvikmynda- og sjónvarpsverðlaununum var skipt upp. Sjónvarpsverðlaunin verða veitt í haust.

Á ferð með mömmu hlaut alls 9 verðlaun á hátíðinni og var meðal annars valin kvikmynd ársins. Hilmar Oddsson hlaut verðlaun fyrir leikstjórn og handrit og hlutu bæði Þröstur Leó Gunnarsson og Kristbjörg Kjeld verðlaun fyrir leik í aðalhlutverkum.

Kvikmyndin Villibráð hlaut 3 Eddur. Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Hlynur Haraldsson fengu verðlaun fyrir leik í aukahlutverkum og Heimir Sverrisson fékk verðlaun fyrir leikmynd ársins.

Heiðursverðlaun hlaut Sigurður Sverrir Pálsson, kvikmyndatökustjóri, fyrir mikilvægt framlag sitt til íslenskrar kvikmyndagerðar.

Tvenn ný verðlaun voru veitt í ár, fyrir erlenda mynd ársins og uppgötvun ársins en þau eru veitt einstaklingi sem ekki hefur hlotið tilnefningu áður í viðkomandi fagverðlaunaflokki en hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu. Anatomy of a Fall hlaut fyrrnefndu verðlaunin og uppgötvun ársins var Anna Karín Lárusdóttir.

Gunnur Martinsdóttir Schlüter, leikstjóri stuttmyndarinnar Fár, hlaut Evu Maríu Daniels verðlaunin. Verðlaunin eru veitt í tengslum við kvikmyndahátíðina Stockfish en stofnað var til þeirra til að heiðra minningu Evu Maríu Daniels, kvikmyndaframleiðanda. Verðlaunin eru veitt framleiðanda eða leikstjóra sem skarar fram úr á sínu sviði. Eiginmaður Evu Maríu, Moritz Diller, og sonur þeirra, afhentu verðlaunin.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir tilnefningar, verðlaunahafar feitletraðir:

Barna- og unglingamynd ársins

Konni
Sætur (Felt Cute)
Þið kannist við…

Erlend kvikmynd ársins

Anatomy of a Fall (Fallið er hátt)
Fallen Leaves
Killers of the Flower Moon
Oppenheimer
Past Lives

Heimildamynd ársins
Heimaleikurinn
Skuld
Smoke Sauna Sisterhood

Heimildastuttmynd ársins

Konni
Super Soldier
Uppskrift: lífið eftir dauðann

Kvikmynd ársins

Á ferð með mömmu
Tilverur
Villibráð

Stuttmynd ársins

Dunhagi 11
Sorg etur hjarta
Sætur (Felt Cute)

Brellur ársins

Davíð Jón Ögmundsson, Dragos Vilcu, Árni Gestur Sigfússon og Rob Tasker fyrir Napóleonsskjölin
Jean-Michel Boublil, Jörundur Rafn Arnarson fyrir Northern Comfort
Atli Þór Einarsson fyrir Óráð

Búningar ársins

Helga Rós V. Hannam fyrir Á ferð með mömmu
Helga Rós V. Hannam fyrir Kulda
Arndís Ey fyrir Tilverur

Gervi ársins

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Á ferð með mömmu
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Kulda
Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Villibráð

Handrit ársins

Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu
Erlingur Óttar Thoroddsen fyrir Kulda
Tyrfingur Tyrfingsson og Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð

Hljóð ársins

Matis Rei fyrir Á ferð með mömmu
Björn Viktorsson fyrir Northern Comfort
Huldar Freyr Arnarson fyrir Smoke Sauna Sisterhood

Klipping ársins

Gunnar B. Guðbjörnsson og Kristján Loðmfjörð fyrir Napóleonsskjölin
Hendrik Mägar fyrir Smoke Sauna Sisterhood
Ivor Šonje fyrir Tilverur

Kvikmyndataka ársins

Óttar Guðnason fyrir Á ferð með mömmu
Árni Filippusson fyrir Napóleonsskjölin
Ants Tammik fyrir Smoke Sauna Sisterhood

Leikari ársins í aðalhlutverki

Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Á ferð með mömmu
Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Tilverur
Gísli Örn Garðarsson fyrir Villibráð

Leikari ársins í aukahlutverki

Ólafur Darri Ólafsson fyrir Napóleonsskjölin
Hilmir Snær Guðnason fyrir Villibráð
Björn Hlynur Haraldsson fyrir Villibráð

Leikkona ársins í aðalhlutverki

Kristbjörg Kjeld fyrir Á ferð með mömmu
Elín Hall fyrir Kulda
Vivian Ólafsdóttir fyrir Napóleonsskjölin

Leikkona ársins í aukahlutverki

Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Kulda
Selma Björnsdóttir fyrir Kulda
Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Villibráð

Leikmynd ársins

Heimir Sverrisson fyrir Napóleonsskjölin
Hulda Helgadóttir, Eggert Ketilsson fyrir Northern Comfort
Heimir Sverrisson fyrir Villibráð

Leikstjóri ársins

Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu
Anna Hints fyrir Smoke Sauna Sisterhood
Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð

Tónlist ársins

Tönu Kõrvits fyrir Á ferð með mömmu
Daníel Bjarnason fyrir Northern Comfort
Eðvarð Egilsson fyrir Smoke Sauna Sisterhood

Uppgötvun ársins
Anna Karín Lárusdóttir

Heiðursverðlaun

Sigurður Sverrir Pálsson kvikmyndatökustjóri fyrir einstakt framlag sitt til íslenskrar kvikmyndalistar.