Um KMÍ
Á döfinni

12.1.2021

A Song Called Hate valin til þátttöku á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg og DocPoint í Finnlandi

Heimildamynd Önnu Hildar, A Song Called Hate, mun koma til með taka þátt í keppni norrænna heimildamynda (Nordic Documentary Competition) á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg, sem haldin verður dagana 29. janúar - 8. febrúar. Hátíðin er sú stærsta á Norðurlöndunum og fer nú fram í 44. skipti í stafrænu formi.

Verðlaunin sem A Song Called Hate keppir um bera heitið Dragon Award Best Nordic Documentary og alls keppa sex heimildamyndir í flokknum.

Þá hefur A Song Called Hate einnig verið valin til þátttöku á kvikmyndahátíðinni DocPoint í Finnlandi. Hátíðin mun fara fram í stafrænu formi dagana 29. janúar - 7. febrúar. 

A Song Called Hate

Tvö hundruð milljón manns eru að horfa! Raunveruleiki sem blasti við íslensku Eurovisonförunum árið 2019 sem voru ákveðnir í að gera hina ópólitísku söngvakeppni pólitíska. Söngur um hatur kortleggur ferðalag hljómsveitarinnar Hatara er þeir reyna að breyta heiminum og sýnir hvernig ferðalagið breytir þeim.

Nánari upplýsingar um hátíðirnar má finna hér:
Göteborg Film Festival
DocPoint - Helsinki Documentary Film Festival