Um KMÍ
Á döfinni
  • KMI_logo_171203

11.5.2020

Alls bárust 72 umsóknir vegna sérstaks átaksverkefnis

Samkvæmt þingsályktun um sérstakt tímabundið fjárfestingaátak til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru hlaut Kvikmyndasjóður 120 m.kr. fjárveitingu til að styrkja verkefni er falla að fjárfestingarátakinu. 

Umsóknarfresti vegna átaksverkefnisins lauk þann 10. maí og samtals bárust 72 umsóknir og alls var sótt um 935,2 millj. kr. Til samanburðar bárust á árinu 2019 alls 180 umsóknir í Kvikmyndasjóð vegna 147 verkefna.

Hægt var að sækja um þrjá styrktarflokka sem hluta af átaksverkefninu en það voru sérstakir þróunarstyrkir, framleiðslustyrkir og kynningarstyrkir. Gert er ráð fyrir að úthlutun verði lokið fyrir 1. júní.