Um KMÍ
Á döfinni

3.5.2017

Anton Máni Svansson valinn til þátttöku á Producers on the Move á Cannes 2017

European Film Promotion (EFP) eru samtök 38 evrópskra kvikmyndastofnanna sem leggja áherslu á að kynna og markaðssetja evrópskar kvikmyndir og listamenn um heim allan. Hluti af verkefnum EFP er Producer on the Move kynningin sem haldin er í 18. skipti á kvikmyndahátíðinni Cannes dagana 19.-25. maí. 

Á kynningunni eru 20 ungir og efnilegir framleiðendur frá Evrópu valdir til þátttöku til þess að kynna verk sín og styrkja tengslanet sitt. Þeirra á meðal er Anton Máni Svansson, stofnandi Join Motion Pictures, sem hefur m.a. framleitt hina margverðlaunuðu kvikmynd Guðmundar Arnar Guðmundssonar, Hjartasteinn, ásamt því að vera meðframleiðandi Winter Brothers sem Hlynur Pálmason leikstýrir. 

Allar nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér

Producers on the Move er styrkt af Creative Europe - Media áætlun Evrópusambandsins.