Um KMÍ
Á döfinni
  • KMI_logo_171203

28.4.2020

Átaksverkefni 2020 - opið fyrir umsóknir

Verkefni sem sótt er um styrk fyrir þurfa að hefjast fyrir 1. september 2020 og vera lokið fyrir 1. apríl 2021.

Umsóknarfrestur gildir til og með 10. maí næstkomandi en gert er ráð fyrir að úthlutun verði lokið fyrir 1. júní.

Hægt er að sækja um styrkina á vefgátt Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Almennar úthlutunarreglur Kvikmyndasjóðs gilda um þessar úthlutanir og því gildir m.a. að styrkir eru eingöngu veittir þeim sem hafa kvikmyndagerð að aðalstarfi.

Hægt er að sækja um þrjá styrktarflokka sem hluta af þessu átaksverkefni en það eru sérstakir þróunarstyrkir, framleiðslustyrkir og kynningarstyrkir.