Um KMÍ
Á döfinni

19.8.2019

Bergmál vinnur til verðlauna í Locarno

Bergmál eftir Rúnar Rúnarsson hlaut aðalverðlun dómnefndar unga fólksins á hinni virtu kvikmyndahátíð í Locarno í Sviss síðastliðinn laugardag.

Í ræðu sinni þakkaði Rúnar dómnefndinni traustið og sagðist einstaklega stoltur af því að taka við verðlaununum fyrir hönd þeirra hundruði einstaklinga sem komu að því að gera kvikmyndina Bergmál.

Síðan Bergmál var heimsfrumsýnd síðastliðinn sunnudag við standandi lófaklapp í 3000 manna kvikmyndahúsinu FEVI í Locarno, hafa kvikmyndagagnrýnendur og áhorfendur lofað Bergmál. Eins gerðist hinn óvanalegi atburður að ákveðið var að bæta við sýningum á hátíðinni vegna mikillar aðsóknar sem og fjölda áskoranna frá áhorfendum.

„Nógur var heiðurinn fyrir Bergmál að hafa komist í gegnum nálaraugað við að vera valin á þessa mikilvægu hátíð en nú er maður hálf orðlaus, okkur hefði aldrei þorað að dreyma um þvílíka byrjun fyrir myndina okkar“ Sagði Rúnar leikstjóri Bergmáls.

Síðan Síðasti Bærinn var tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 2006 hafa kvikmyndir Rúnars ferðast um helstu hátíðir heimsins og unnið yfir 130 alþjóðleg kvikmyndaverðlaun.

„Íslensk kvikmyndagerð er orðin þekkt stærð í heiminum og er þessi vegferð Bergmáls enn önnur staðfesting á gæðum og ótrúlegum árangri íslensks
kvikmyndargerðarfólks“ bætir Rúnar við. „Bergmál er listrænt djörf en á sama tíma einstaklega falleg og manneskjuleg mynd sem sameinar svo margt. Húmor, sorg og fegurð. Íslensk Jólamynd“ sagði Lilja Snorradóttir framleiðandi.


Sena sér um dreifingu á Íslandi og fer Bergmál í almennar sýningar í nóvember.