Um KMÍ
Á döfinni
  • AgnesCho

7.10.2020

Edduverðlaunin 2020 - Agnes Joy og Hvítur, hvítur dagur sigursælust

Edduverðlaunin 2020, uppskeruhátíð íslenska sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðarins sem ÍKSA stendur fyrir árlega voru veitt í sjónvarpþætti á RÚV þriðjudagskvöldið 6. október. Upphaflega var ráðgert að halda hátíðina með hefðbundnum hætti í mars sl. en fresta þurfti vegna COVID-19 faraldursins.

Í ljósi þeirrar miklu umræðu sem verið hefur um þátttöku kvenna í kvikmyndagerð undanfarin ár er ánæjulegt að geta þess að konur voru áberandi á verðlaunaafhendingunni þetta árið. Kvikmynd ársins, heimildamynd ársins, sjónvarpsefni ársins og stuttmynd ársins (og besta handritið) eiga það allt sameiginlegt að konur sitja þar í leikstjórastól, (sem og í handritaskrifum).

Agnes Joy var kosin kvikmynd ársins og hlaut alls sex verðlaun. Til viðbótar við kvikmynd ársins hlaut Agnes Joy  einnig verðlaun fyrir besta handrit, auk þess sem Katla Margrét Þorgeirsdóttir var valin besta leikkona í aðalhlutverki og Björn Hlynur Haraldsson hlaut Edduna fyrir besta leik í aukahlutverki. Þá hlaut Agnes Joy einnig Edduna fyrir hljóð ársins og klippingu ársins.

Þá hlaut Hvítur, hvítur dagur einnig sex Edduverðlaun, en Hlynur Pálmason var valinn besti leikstjórinn fyrir Hvítan, hvítan dag og Maria von Hausswolff hlaut verðlaun fyrir kvikmyndatöku í sömu mynd. Ingvar E. Sigurðsson var valinn besti leikari í aðalhlutverki og hin unga Ída Mekkín Hlynsdóttir verðlaunuð fyrir leik í aukahlutverki. Auk þess hlaut Hvítur, hvítur dagur Edduna fyrir tónlist ársins og leikmynd ársins.

Blaðberinn var valin stuttmynd ársins, Vasulka áhrifin heimildamynd ársins og Pabbahelgar leikið sjónvarpsefni ársins. 

Að þessu sinni voru veitt verðlaun í 26 flokkum sem kosin voru af meðlimum ÍKSA, auk verðlauna fyrir sjónvarpsefni ársins sem eru áhorfendaverðlaun og voru valin í rafrænni kosningu. Þá voru árleg Heiðursverðlaun Eddunnar einnig veitt og komu þau í hlut Spaugstofunnar að þessu sinni.

Hér að neðan er listi yfir sigurvegara Eddunnar 2020:

Barna- og unglingaefni ársins
Goðheimar
Framleitt af Netop Films og Profile Pictures

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins
Kveikur
Framleiðandi RÚV

Heimildamynd ársins
Vasulka áhrifin
Framleiðendur Sagafilm og Krumma films

Kvikmynd ársins
Agnes Joy
Framleiðandi Vintage Pictures

Leikið sjónvarpsefni ársins
Pabbahelgar
Framleiðendur Zik Zak og Cubs Productions

Menningarþáttur ársins
Kiljan
Framleiðandi RÚV

Mannlífsþáttur ársins
Svona fólk
Framleiðandi Krumma films

Skemmtiþáttur ársins
Áramótaskaup 2019
Framleitt af Republik fyrir RÚV

Íþróttaefni ársins ársins
HM stofan – HM kvenna í fótbolta
Framleiðandi RÚV

Stuttmynd ársins
Blaðberinn
Framleiðandi Hero Productions Iceland

Brellur ársins
Pétur Karlsson, Eva Sólveig Þórðardóttir og Haukur Karlsson
fyrir Ófærð 2

Búningar ársins
Margrét Einarsdóttir
fyrir Goðheima

Gervi ársins
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir
fyrir Ófærð 2

Handrit ársins
Silja Hauksdóttir, Gagga Jónsdóttir og Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir
fyrir Agnes Joy

Hljóð ársins
Gunnar Árnason
fyrir Agnes Joy

Klipping ársins
Kristján Loðmfjörð og Lína Thoroddsen
fyrir Agnes Joy

Kvikmyndataka ársins
Maria von Hausswolff
fyrir Hvítur, hvítur dagur

Leikari í aðalhlutverki ársins
Ingvar E. Sigurðsson
fyrir Hvítur, hvítur dagur

Leikkona í aðalhlutverki ársins
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
fyrir Agnes Joy

Leikkona í aukahlutverki ársins
Ída Mekkín Hlynsdóttir
fyrir Hvítur, hvítur dagur

Leikari í aukahlutverki ársins
Björn Hlynur Haraldsson
fyrir Agnes Joy

Leikmynd ársins
Hulda Helgadóttir
fyrir Hvítur, hvítur dagur

Leikstjórn ársins
Hlynur Pálmason
fyrir Hvítur, hvítur dagur

Sjónvarpsmaður ársins
Helgi Seljan fyrir Kveik

Tónlist ársins
Edmund Finnis
fyrir Hvítur, hvítur dagur

Upptöku- eða útsendingarstjórn ársins
Salóme Þorkelsdóttir og Gísli Berg
fyrir Söngvakeppnina 2019

Sjónvarpsefni ársins – Almenn kosning
Dominos körfuboltakvöld – Stöð 2 Sport

Heiðursverðlaun Eddunnar 2020
Spaugstofan