Um KMÍ
Á döfinni

13.9.2019

Hildur Guðnadóttir áberandi fyrir kvikmyndatónlist sína á alþjóðavettvangi

Tónskáldið Hildur Guðnadóttir semur tónlistina við kvikmyndina Jókerinn sem hlaut Gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum sem fór fram frá 28. ágúst - 7. september. Verðlaunin eru aðalverðlaun hátíðarinnar sem er elsta kvikmyndahátíð í heimi og með þeim allra virtustu. Jókerinn er leikstýrð af Todd Phillips og með aðalhlutverk fer Joaquin Phoenix.

Hildur hefur fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir tónlist sína í kvikmyndinni þar sem meðal annars segir í The Hollywood Reporter: „Allt þetta verður enn þá myrkara vegna uggandi trega í tónlist Hildar Guðnadóttur sem umbreytist í drynjandi dramtík þegar óreiðan fer á yfirsnúning.“ Í viðtali við AP sagði Phoenix að tónlist Hildar hafi haft umtalsverð áhrif á þróun persónunnar og andrúmsloftið í kvikmyndinni, en hún byrjaði að semja tónlistina rétt eftir að hafa lesið handritið. 

Nýlega var Hildur tilnefnd til Emmy-verðlauna fyrir tónlist sína í stuttseríunni Chernobyl. Þættirnir voru frumsýndir á HBO-sjónvarpstöðinni í vor og fjölluðu um slysið sem varð í kjarnorkuverinu í Tsjernobyl í Úkraínu árið 1986. Tónlist þáttanna er sögð bæði ómstríð, drungaleg og ægifögur og hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og almennings. Hildur segir að hvert einasta hljóð í tónlistinni komi úr kjarnorkuverinu og leitaði hún þá í kjarnorkuverið í Litháen þar sem þættirnir voru teknir upp fyrir innblástur og upptökur fyrir tónlist sína.

Hildi var nýverið boðið sæti í bandarísku kvikmyndaakademíunni auk þess sem hún hefur samið tónlist við kvikmyndir eins og Sicario: Day of the Soldat sem kom út árið 2018 og Tom of Finland frá árinu 2017. Þá vann Hildur Edduverðlaunin árið 2017 fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Eiðurinn eftir Baltasar Kormák og árið 2016 hlaut hún, ásamt þeim Jóhanni Jóhannsyni og Rutger Hoedemækers, Edduverðlaunin fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttaröðinni Ófærð.  

Kvikmyndamiðstöð Íslands óskar Hildi innilega til hamingju með árangurinn.