Um KMÍ
Á döfinni

21.11.2019

Hildur Guðnadóttir tilnefnd til Grammy verðlaunanna fyrir Chernobyl

Tónskáldið Hildur Guðnadóttir er tilnefnd til Grammy verðlaunanna fyrir tónlist sína í stuttseríunni Chernobyl, en verðlaunin eru í flokki tónlistar fyrir myndræna miðla. Verðlaunaafhendingin mun fara fram í Los Angeles þann 26. janúar. 

Hildur hlaut nýverið Emmy verðlaun í flokki frumsaminnar tónlistar fyrir tónlist sína í sömu þáttaröð, en Chernobyl þættirnir voru frumsýndir á HBO-sjónvarpstöðinni í vor og fjölluðu um slysið sem varð í kjarnorkuverinu í Tsjernobyl í Úkraínu árið 1986.

Tónlist þáttanna er sögð bæði ómstríð, drungaleg og ægifögur og hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og almennings. Hildur segir að hvert einasta hljóð í tónlistinni komi úr kjarnorkuverinu og leitaði hún þá í kjarnorkuverið í Litháen þar sem þættirnir voru teknir upp fyrir innblástur og upptökur fyrir tónlist sína.  

Hildur samdi einnig tónlistina við kvikmyndina Jókerinn sem hlaut Gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum sem fór fram frá 28. ágúst - 7. september. Verðlaunin voru aðalverðlaun hátíðarinnar sem er elsta kvikmyndahátíð í heimi og með þeim allra virtustu. Jókerinn er leikstýrð af Todd Phillips og með aðalhlutverk fer Joaquin Phoenix.

Allar tilnefningar til Grammy verðlaunanna má finna á heimasíðu hátíðarinnar