Um KMÍ
Á döfinni

21.12.2020

Humarsúpa vinnur til verðlauna á DocsValència

Humarsúpa, spænsk/íslensk/litháísk heimildamynd undir leikstjórn Pepe Andreu og Rafael Molés, vann til Mirades verðlaunanna fyrir bestu heimildamyndina á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni DocsValència sem fór fram dagana 10. - 19. desember. Humarsúpa var heimsfrumsýnd á hinni virtu San Sebastian hátíð í september og er það ein af fáum svokölluðum „A“ kvikmyndahátíðum í heiminum. 

Litli veitingastaðurinn á bryggjunni í Grindavík er sálin í þorpinu, athvarf gamalla sjómanna, músíkanta og menningarvita. Þegar erlendir ferðamenn uppgötva staðinn og streyma að til að upplifa stemninguna, kaupa fjárfestar staðinn og færa út kvíarnar. Þá er spurning hvort sálin í Bryggjunni fylgi með.

Pepe Andreu og Rafael Molés leikstýrðu myndinni og handritið skrifuðu Pepe Andreu, Rafael Molés, Ólafur Rögnvaldsson og Arunas Matelis. Framleiðendur eru Pepe Andreu og Rafael Molés fyrir Suica Films og meðframleiðendur eru José Luis Rubio fyrir Rec Grabaketa Estudioa, Ólafur Rögnvaldsson fyrir Axfilms og Algimanté Mateliene fyrir Studio Nominum.

Allar nánari upplýsingar um DocsValència má finna á heimasíðu hátíðarinnar.