Um KMÍ
Á döfinni

9.12.2019

Icelandair bakhjarl Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2020 í Reykjavík

Síðastliðinn laugardag, þann 7. desember, voru Evrópsku kvikmyndaverðlaunin afhent í 32. sinn og fór verðlaunahátíðin fram í Berlín. Ingvar E. Sigurðsson var þar tilnefndur sem besti evrópski leikarinn fyrir leik sinn í mynd Hlyns Pálmasonar, Hvítur hvítur dagur. Í tilefni hátíðarinnar bauð María Erla Marelsdóttir, sendiherra Íslands í Þýskalandi til móttöku til heiðurs Ingvari þar sem tilnefningunni var fagnað.

Verðlaunahátíðin, sem segja má að séu hin evrópsku Óskarsverðlaun, fer fram á hverju ári. Annað hvort ár er hún haldin í Berlín, þar sem höfuðstöðvar Evrópsku kvikmyndaakademíunnar eru og hitt árið ferðast hátíðin á milli borga í Evrópu. Á næsta ári verður hátíðin haldin í fyrsta sinn á Íslandi og fer hún fram í Hörpu þann 12.12 2020. Undirbúningur er þegar hafinn, enda er þetta umfangsmikið verkefni sem unnið er í samstarfi íslenska ríkisins, Reykjavíkurborgar og Evrópsku kvikmyndaakademíunnar.

Það að Reykjavík hafi verið valin sem gestgjafi hátíðarinnar sýnir fyrst og fremst styrk íslenskrar kvikmyndagerðar sem hlotið hefur verðskuldaðar viðurkenningar á síðustu árum og áratugum. Hátíðin vekur jafnan alþjóðlega athygli, er sjónvarpað beint og streymt á netinu og því ljóst að Ísland verður í kastljósi evrópska kvikmyndaheimsins að ári.

Icelandair hefur um árabil stutt dyggilega við íslenska menningu og listir og hefur náðst samkomulag á milli EFA 2020 og Icelandair um að fyrirtækið verði einn af bakhjörlum Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík árið 2020. Samkomulag þess efnis var undirritað í bústað sendiherra Íslands í Berlín af Örnu Schram, sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar og formanni stjórnar EFA 2020, og Gísla S. Brynjólfssyni, markaðsstjóra Icelandair. Viðstaddir undirritunina voru m.a. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Ingvar E. Sigurðsson.

Hér má sjá verðlaunahafa Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna árið 2019.