Um KMÍ
Á döfinni
  • VasulkaEffect

11.6.2019

Heimildamyndahátíðin Skjaldborg: In Touch vann til dómnefndarverðlaunanna og Vasulka áhrifin hlaut áhorfendaverðlaunin

Heimildamyndahátíðin Skjaldborg var haldin á Patreksfirði í þrettánda sinn um hvítasunnuhelgina. Fjórtán íslenskar heimildamyndir voru frumsýndar og sex verk í vinnslu. Það voru heimildamyndirnar Vasulka áhrifin og In Touch sem unnu til verðlauna hátíðarinnar. Vasulka áhrifin hlaut Einarinn og In Touch hlaut Ljóskastarann. 

Vasulka áhrifin, sem hlaut áhorfendaverðlaunin Einarinn, er eftir Hrafnhildi Gunnarsdóttur og fjallar um videolistamennina og frumkvöðlana Steinu og Woody Vasulka sem hafa haft ótvíræð áhrif á þróun seinni endurreisnar tímabilsins í listum. Þau eru á áttræðisaldri og í fjárkröggum en fyrir tilviljun eru þau enduruppgötvuð af listaheiminum sem þau töldu sig aldrei hluta af og skjótast aftur upp á stjörnuhimininn.

Hrafnhildur-Gunnarsdottir-meTH-ahorfendaverTHlaunin-Einarinn

Vasulka áhrifin var kynnt sem verk í vinnslu árið 2017 og komu Vasulka-hjónin jafnframt á hátíðina það ár sem heiðursgestir.

Heimildamyndin In Touch eftir Pawel Ziemilski hlaut dómnefndarverðlaunin Ljóskastarinn, en hún fjallar um pólska íbúa á Íslandi og hvernig þeir halda tengslum við sína nánustu. Ástarsamband íslensks manns og pólskrar konu er forsagan að miklum brottflutningum frá einum smábæ í Póllandi en í kjölfarið fluttu 400 manns frá þeim bæ til Íslands og enginn hefur snúið aftur.

Dómnefndin, sem samanstóð af leikstjóranum Hafsteini Gunnari Sigurðssýni, Margréti Örnólfsdóttur, handritshöfundi, og Önnu Þóru Steinþórsdóttur, tvöföldum sigurvegara frá hátíðinni í fyrra, hafði eftirfarandi að segja um In Touch: “Þetta er hrífandi, úthugsað, djarft og frumlegt verk sem skapar sitt eigið tungumál og miðlar stórri sögu á áhrifamikinn hátt. Leikstjórinn býr yfir næmni og hefur mikil og góð tök á miðlinum. Við viljum þakka kvikmyndagerðarmönnunum fyrir að opna augu okkar fyrir hluta af okkar menningu sem okkur hulinn.” 

Att5ofii

Meðframleiðandi myndarinnar, Anton Máni Svansson, veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd Join Motion Pictures og Pawels Ziemilski leikstjóra myndarinnar, sem fékk hlýjar kveðjur heim til Póllands strax að lokinni verðlaunaafhendingu. 

Myndir af verðlaunahöfum eru teknar af Hrund Atladóttur.