Um KMÍ
Á döfinni

11.3.2019

In Touch vinnur til verðlauna á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Þessalónikíu

Íslenska/pólska heimildamyndin In Touch eftir Pawel Ziemilski vann til verðlauna á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Þessalóníku sem fór fram 1. – 10. mars. Verðlaunin bera heitið The Human Value Award og eru þetta önnur verðlaunin sem In Touch vinnur til. Heimildamyndin vann til sérstakra dómnefndaverðlauna á síðasta ári í aðalkeppni á IDFA , einni stærstu heimildarmyndahátíð í heimi, sem fór fram í Amsterdam dagana 14. - 25. nóvember.

In Touch er framleidd af Lukasz Dluglecki og Hauki M. Hrafnsyni fyrir NUR og meðframleidd af Antoni Máni Svanssyni fyrir Join Motion Pictures. Fjölmargir Íslendingar komu að gerð myndarinnar sem tekin var upp að miklu leyti á Íslandi. Þar á meðal sá Ásta Júlía Guðjónsdóttir um kvikmyndatökur hér á landi, Haukur M. kom að handritsgerðinni og frumsamin tónlist er eftir Árna Val Kristinsson.

Þorpið Stare Juchy í Póllandi tvístrast eftir að þriðjungur íbúa þess hverfur til starfa á Íslandi. Þeir sem eftir eru, flestir af eldri kynslóðinni, halda í vonina að börn þeirra og barnabörn snúi einn daginn tilbaka þrátt fyrir að hafa hafið nýtt líf hinum megin í Evrópu. Fjarlægðin á milli þeirra er mikil og ferðin er dýr, svo fjölskyldur fá ekki að faðmast eins oft og þær kjósa. Besta í stöðunni er að vera í tíðu og áköfu sambandi í gegnum Skype.

Í In Touch gerir Pawel Ziemilski, leikstjóri myndarinnar, tilraun til þess að færa þessar brotnu fjölskyldur saman á ný á sjónrænan hátt með endurvarpi hreyfimynda á bakgrunn sem hefur sérstakt gildi og merkingu fyrir þá sem eiga hlut að máli; á veggi æskuheimilisins, félagsheimilisins , út í náttúrunni, á ástvini. Útkoman er einlæg og frumleg kvikmynd um raunveruleika sem svo margir búa við og eilíflegar tilfinningar líkt og heimþrá og fjölskylduást.