Um KMÍ
Á döfinni

25.6.2019

Íslenskur kvikmyndafókus í Vancouver, Kanada: „Wayward Heroes: A Survey of Modern Icelandic Cinema“

Tíu íslenskar kvikmyndir eru í brennidepli á íslenskum kvikmyndafókus sem stendur nú yfir í Vancouver, Kanada frá 13. - 28. júní. Kvikmyndafókusinn einblínir á röð íslenskra kvikmynda sem varpa ljósi á þróun kvikmyndagerðar á Íslandi síðustu fjóra áratugi. 

TIFF, ein virtasta kvikmyndastofnun í Norður-Ameríku, stendur fyrir sýningarröðinni í samvinnu við Kvikmyndamiðstöð Íslands, Íslandsstofu og Iceland Naturally og henni er stjórnað af Steve Gravestock, einum af dagskrárstjórum alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Toronto. 

Sýningarröðin hóf göngu sína í TIFF Bell Lightbox í Toronto, Kanada síðastliðinn maí, en í kjölfarið var óskað eftir sömu sýningarröð í Vancouver (The Cinematheque), Regina (Regina Public Library) og Winnipeg (Cinematheque). Þess má einnig geta að Ísland er í forgrunni í nýrri bók eftir Steve Gravestock sem mun bera heitið „A History of Icelandic Film“.

Opnunarkvöldið í Vancouver þann 13. júní byrjaði með kynningu Steve Gravestock á kvikmyndinni Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson, en myndirnar tíu sem sýndar eru á fókusnum eru eftirfarandi:

Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson, 1991 

Svo á jörðu sem á himni eftir Kristínu Jóhannesdóttur, 1992 

Íslenski draumurinn eftir Róbert I. Douglas, 2000

Gullsandur eftir Ágúst Guðmundsson, 1984 

Mýrin eftir Baltasar Kormák, 2006 

Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunnlaugsson, 1984 

Nói Albínói eftir Dag Kára, 2003 

Vonarstræti eftir Baldvin Z, 2014 

Kristnihald undir jökli eftir Guðnýju Halldórsdóttur. 1989 

Hrútar eftir Grím Hákonarson, 2015 

 

Um TIFF

TIFF er ein virtasta kvikmyndastofnun í Norður-Ameríku og er í fararbroddi þegar kemur að kvikmyndamenningu. TIFF stendur meðal annars fyrir alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto, sem er fjölsóttasta hátíð heims en um hálf milljón gesta sækir hana að jafnaði í hverjum septembermánuði og um fimm þúsund manns úr alþjóðlegum kvikmyndaheimi. Hundruðir kvikmynda af fjölbreyttu tagi eru á dagskrá hátíðarinnar hverju sinni í fjölmörgum flokkum. Hátíðin var stofnuð 1976 og hefur fyrir löngu unnið sér sess sem einskonar hlið að Ameríkumarkaði kvikmynda, en öflugur markaður fer einnig fram á hátíðinni. Áhorfendaverðlaun hátíðarinnar þykja gjarnan gefa vísbendingu um velgengni á "verðlaunatímabilinu" svokallaða. TIFF á og rekur einnig Tiff Bell Lightbox sem heldur utan um fimm kvikmyndasali og stendur fyrir fjölda viðburða og sýninga.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu TIFF